Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða arrow Greinasafn arrow Íslenski boltinn arrow 2. hluti - Ísland og Evrópa: Nokkur KR ævintýri
2. hluti - Ísland og Evrópa: Nokkur KR ævintýri PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Ari   
Tuesday, 20 July 2010

Nú er komið af öðrum hluta í greinaröðinni Ísland og Evrópa. Fyrir helgi rifjuðum UEFA logovið upp stórbrotin afrek Hlíðarendapilta en nú er komið af Reykjavíkurstórveldinu sjálfu. Knattspyrnufélag Reykjavíkur reið á vaðið í Evrópu fyrst íslenskra félaga árið 1964. Andstæðingarnir voru Englandsmeistarar Liverpool sem líkt og KR léku sína fyrstu Evrópuleiki. KR-ingarnir áttu ekkert í Poolarana og töpuðu samanlagt 1-11. Næstu 5 tímabil frá 1965-1969 sendu Vesturbæingar lið til leiks en áttu ekki erindi sem erfiði. Margir skellir litu dagsins ljós. 2-12 gegn Feyenoord og 0-10 gegn Aberdeen svo dæmi séu tekin. 25 ár liðu svo þar til KR tók þátt í Evrópukeppni á nýjan leik.

 

Enska liðið QPR  dróst gegn KR árið 1984 og lítil stemmning virtist vera fyrir leikjunum hér á landi. Fáir áhorfendur mættu í roki og rigningu á Laugardalsvöllinn til að sjá KR-inga steinliggja fyrir Drottningagarðsvörðunum frá London. Seinni leiknum sem fram fór á Highbury lauk einnig með tapi. 0-3. Árið 1991 mættu KR-ingar ítalska liðinu Torino með stjörnurnar Lentini og Scifo fremsta í flokki. KR-ingar KR logoáttu ekki séns. Töpuðu 1-6 og 0-2. Árið 1993 lauk Evrópu eyðimerkurgöngu þeirra röndóttu er þeir fóru loks í gegnum viðureign án þess að tapa báðum leikjunum. Í raun voru þeir óheppnir að falla úr leik gegn MTK Budapest frá Ungverjalandi. Töpuðu í Frostaskjólinu 1-2 þrátt fyrir að stjórna leiknum og gerðu svo 0-0 jafntefli úti og þar klúðruðu þeir meðal annars vítaspyrnu. Vilhjálmur Vilhjálmsson 16 ára 3. flokks strákur spilaði sína einu Evrópuleiki og nældi sér í gult spjald í báðum leikjunum. Ágætis afrek það.

Árið 1995 tók við lítið Evrópuævintýri hjá KR-ingum. Þeir fóru loksins í gegnum fyrstu umferð með samanlagt 4-3 sigri á Grevenmacher frá Lúxemborg. Í annarri umferðinni biðu sjálfir bikarmeistarar Englands. Everton. Þótt KR hafi aldrei átt alvöru möguleika gegn Everton þá veittu þeir þeim svo sannarlega harða keppni.

 

KR – Everton 14. sept. 1995. 2-3 á Laugardalsvelli. Þetta septemberkvöld fór fram einn æsilegasti leikur sem háður hefur verið á Laugardalsvellinum. Bæði lið skiptust á að sækja, hraðinn var mikill og ekki skemmdi stemmninginn fyrir enda um 6000 áhorfendur í stúkunni. Everton byrjaði með látum og sótti mikiðDaniel Amokachi fyrstu mínúturnar, loks skoraði John Ebrell á 23 mínútu. Við það vöknuðu KR-ingar til lífsins og þá sérstaklega framherjar liðsins refurinn Mihaljo Biberchic og hinn ungi og efnilegi Guðmundur Benediktsson. Mikki Bíb átti skot í þverslá og Gummi fíflaði Everton mennina hvað eftir annað með leikni sinni. Biberchic jafnaði leikinn á 37 mínútu úr vítaspyrnu eftir að Heimir Guðjónson hafði verið felldur. 1-1 í hálfleik og mátti ekki á milli sjá hvort liðið væri enskt úrvalsdeildarlið. Everton náði betri tökum á leiknum í seinni hálfleik og David Unsworth skoraði úr ódýrri vítaspyrnu á 57 mínútu. KR-ingar héldu samt áfram að stríða þeim bláu með vel útfærðum skyndisóknum. Hilmar Björns, Einar Dan, Mikki Bíb og Gummi Ben voru þar í aðalhlutverkum. Loks fiskaði Gummi Ben víti á 68 mín sem Mikki Bíb skoraði úr og áhorfendur á Laugardalsvelli ærðust úr fögnuði. Allt stefndi í sanngjarnt jafntefli þar til á 88 mínútu þegar Nígeríumaðurinn Daniel Amokachi snéri sér snöggt í vonlitlu færi og sendi boltann í stöngina og inn. Súrt tap 2-3 en skemmtunin sem liðin buðu upp mun ávallt lifa í minningum þeirra sem sáu.

 

Everton – KR 28. Sept 1995. 3-1 á Goodison Park. Það óvænta gerðist á Goodison Park í Liverpool að KR komst yfir gegn Everton og var meira að segja með 0-1 forystu í hálfleik. Það sló þögn á þá 18422 áhorfendur er höfðu borgað sig inn á Goodison Park þegar Einar Þór Daníelsson batt endi á vel útfærða skyndisókn með marki. Evertonmenn voru sjokkeraðir og náðu lítið að skapa þrátt fyrir að vera meira með boltann, í raun komst Gummi Ben næst því að skora þegar hann átti frábært skot af 20 metra færi sem stefndi í sammarann.com en einungis markvarsla á heimsmælikvarða frá Neville Southall kom í veg fyrir að KR-ingar færu með 0-2 forystu til búningsherbergja. Everton náði betri tökum á leiknum eftir hlé og sóttu látlaust. Tony Grant kom þeim yfir á 69 mínútu og Paul Rideout innsiglaði Gummi Bensigurinn á 87 mínútu. 3-1 tap eftir að hafa leitt með einu marki í hálfleik. Viðureignarinnar verður ef til vill helst minnst fyrir opnunarmark leiksins sem Einar Þór skoraði. Ekki slæmt að geta farið með 1-0 forystu í hálfleik gegn ensku bikarmeisturunum. Mér er það einnig mjög minnistætt hvernig Guðjón Þórðasson þjálfari KR-inga baðaði sig í sviðsljósinu í aðdraganda leiksins og ekki hefur honum fundist það leiðinlegt. Margir muna eflaust eftir sjónvarpsklippum sem stöð 2 birti í kringum leikina. Þá hafði Guðjón hleypt sjónvarpsmönnum Stöðvar 2 inn á síðasta liðsfund fyrir leik sem fram fór á hóteli í Liverpool borg. Þar var Guðjón svo sannarlega í essinu sínu og við tók allsvaðalega dramatísk Al Pacino ræða þar sem hann lamdi í borð og hvatti menn áfram af sinni alkunnu snilld. Ég gerði stutta leit af þessum klippum á youtube en varð ekkert ágengt. Skora því hér með á stöð 2 að endursýna þessa klippu sem fyrst. Þrátt fyrir tap í báðum leikjunum vöktu leikmenn KR mikla athygli í kjölfarið. Þeir voru jú óhræddir við að sækja gegn miklu mun stærra liði. Einar Þór Daníelsson fékk mikið lof í breskum miðlum og frá stjórnarmönnum Everton. Biberchic hélt því fram í samtali við DV eftir seinni leikinn að Everton hafi boðið honum að æfa með þeim í 1 mánuð en hann hefði ekki haft áhuga á því. Hann væri víst með fleiri járn í eldinum. Það fór reynar svo að hann hætti hjá KR og fylgdi Guðjóni upp á Skaga árið eftir en þá tók spikfeita tímabilið við hjá Mikka vini okkar og náði hann ekki frekari frama, hvorki á íslenskum fótboltavöllun né erlendum.

Ári seinna árið 1996 gerðu KR-ingar sér vonir um frekari árangur í Evrópu og þeir voru grátlega nærri því að afreka stóra hluti en lánið lék ekki við þá. Þeir byrjuði á að fara í gegnum Mosyr frá Hvíta Rússlandi án mikillar fyrirhafnar. FH-ingar ATH lið frá Hvíta Rússlandi ;) !! Því næst tóku við sænsku bikarmeistararir í AIK í 32 liða úrslitum keppninar. AIK voru slakir og KR-ingar nýttu sér það ekki er þeir töpuðu klaufalega 0-1 í Laugardalnum. Undirrituðum er það helst minnistætt úr þessum leik að hann gegndi hlutverki boltastráks og gerðist svo djarfur að spyrja Magnus Hedman markmann AIK hvort hann væri ekki til í að gefa frá sér markmannshanskana. Hedman brosti bara og hristi hausinn. Útileikurinn endaði með 1-1 jafntefli þar sem Guðmundur Ben skoraði skemmtilegt mark. AIK dróst svo gegn franska 3 deildar liðinu Nimes í 16-liða úrslitum og sló það út án teljandi fyrirhafnar. Það segir sitt um möguleikana sem KR hefði átt.

 

Snoturt mark hjá Gumma Ben í lok myndbandsins.

Árið 1997 tefldu KR-ingar fram ógnarsterku liði. Það þarf bara að líta á framherjasveitina sem þeir höfðu á að skipa til að sjá það. Ríkharður Daðason, Guðmundur Ben, Andri Sigþórsson og já svo hafði Árbæjarprinsinn Þórhallur Dan Jóhannsson villst í Vesturbæinn þetta sumarið. Miðjan var heldur ekkert slor. Brynjar Gunnarsson og Heimir Guðjóns stórnuðu þar spilinu af festu. Besti leikmaður KR á þessum tíma var samt án nokkurs vafa Einar Þór Daníelsson og hann blómstraði sem aldrei fyrr í Evrópukeppninni. KR-ingar höfðu eins og svo oft áður verið með allt niðrum sig í deildinni þrátt fyrir yfirburðarmannskap. Því var Evrópukeppnin síðasta hálmstráið hjá Haraldi Haraldssyni nýráðnum þjálfara KR-inga. Andstæðingarnir voru Dinamo Búkarest rúmenskt stórlið sem hafði meðal annars komist í undanúrslit UEFA keppninnar 8 árum áður. Rúmenska deildin hafði þó verið að veikjast hægt og bítandi enda flestir landsliðsmennirnir að spila í Vestur-Evrópu. Þó hafði Dinamo á að skipa fínu liði og í markinu var meðal annars rúmensk HM 94 hetja. Florian Prunea að nafni auk nokkurra U21 landsliðsmanna.  

KR – Dinamo Búkarest 23. Júlí 1997. 2-0 á Laugardalsvelli: Eins og áður er getið var KR hópurinn gríðarlega vel mannaður þetta sumarið en þó voru þeir Rikkimeiðslum hrjáðir er þeir mættu til leiks gegn 14földum rúmenskum meisturum þetta júlíkvöld. Einungis 15 menn voru á skýrslu, þar á meðal hinn 15 ára gamli Indriði Sigurðsson. KR ingar komu öllum nema sjálfum sér á óvart þetta Evrópukvöld er þeir sundurspiluðu þá rúmensku. Tvö mörk í sitthvorum hálfleiknum frá Rikka Daða og Einari Þór skilaði sér í 2-0 sigri. Rúmenarnir neituðu öllum viðtölum og búningamaðurinn sem virtist vera sá eini sem gat tjáð sig á ensku, sagði að Dinamo menn væru á hraðferð því þeir þyrftu að ná flugi. Því var hoppað upp í rútu án þess að baða sig eftir leik. Þjálfara Dinamo var umsvifalust sagt upp störfum eftir útreiðina í Reykjavík og forseti liðsins stjórnaði því liðinu í seinni leiknum viku síðar.

Dinamo Búkarest – KR 31. Júlí 1997. 1-2 í Búkarest: Einhver bestu úrslit íslensk liðs fyrr og síðar litu dagsins ljós í óvinveittum aðstæðum í Rúmeníu. Í það minnsta voru aðstæðurnar óvinveittar til að byrja með. Hörðustu stuðningsmenn Dinamo tóku á móti KR-ingum með því að kasta ýmsum rúmeníalauslegum hlutum í átt að rútu liðsins er þeir mættu til leiks á leikvanginn. Auk blóðheitra áhorfenda slagaði hitinn upp í tæpar 40 gráður og því erfitt verkefni fyrir höndum. Þeir 15 þúsund áhorfendur sem borguðu sig inná völlinnn trúðu því ekki sem fyrir augu bar í fyrri hálfleik. Dinamo menn stjórnuðu leiknum en gekk illa að brjóta niður varnarmúr KR-inga. Í liði KR-inga var Ríkharður Daðason og hann refsaði þeim rúmensku svo um munaði. Setti 2 mörk á fyrsta hálftímanum áður en Dinamo menn minnkuðu muninn fyrir hlé. 2-1 í hálfleik og staðan því samanlagt 4-1 fyrir KR. Seinni hálfleikur fjaraði út enda þeir rúmensku orðnir vonlitlir. Jafnvel hinir eldheitu Dinamo áhorfendur snérust á sveif með KR–ingum í seinni hálfleik, slík var óánægjan. Enda fór það svo að Forsetinn og stjórn félagsins neyddust til að segja af sér strax daginn eftir tapið.

KR-ingar mættu næst OFI frá Grikklandi sem áttu að vera af svipuðum styrkleika og Dinamo. Því miður fyrir KR-inga var Ríkharður meiddur í fyrri leiknum og var hans sárt saknað. KR-ingar áttu heimaleikinn á undan og réðu ferðinni frá upphafi til enda. Grikkirnir ógnuðu KR markinu ekkert og áttu einugis eitt skot á markið á meðan KR-ingar klúðruðu hverju færinu á fætur öðru. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli og ljóst var að róðurinn úti í Grikklandi yrði erfiður því OFI menn höfðu einungis tapað einum heimaleik tvö árin á undan. KR-ingar voru þó í góðum málum lengi framan af. Staðan var 1-1 eftir mark frá Hilmari Björnssyni allt fram á 65 mínútu en þá skoruðu OFI menn 2 mörk með skömmu millibili og leiknum lauk með 1-3 tapi. Svekkjandi tap en færaklúðrin á heimavelli eyðilögðu vonir KR-inga. OFI féll svo úr leik í næstu umferð á eftir gegn Atletico Madrid.   

KR – Kilmarnock 12. ágúst 1999. 1-0 á Laugardalsvelli: Sumarið 1999 var sankallaður stórveldisbragur á KR-ingum. Þeir héldu upp á aldarafmæli félagsins með því að valta yfir allar keppnir á Íslandi bæði í karla og kvennaflokki. Þeir mættu því fullir sjálfstraust til leiks gegn skoska liðinuKR Kilmarnock Kilmarnock á Laugardalsvellinum. KR sýndi hreina yfirburði og yfirspiluðu þá skosku á meðan Kilmarnock ógnaði varla marki KR-inga. Því miður lánaðist þeim svarthvítu einungis að skora 1 mark og þar var að verki Þórhallur Hinriksson eftir aukaspyrnu Guðmundar Ben utan af kanti. Skotarnir fóru því sáttir heim með aðeins eins marks tap á bakinu. Skoskir fjölmiðlar hrósuðu KR-liðinu í hástert en gagnrýndu jafnframt Kilmarnock óvægilega. Stuðningsmenn Kilmarnock sem fylgdu liðinu til Íslands gerðu aðsúg að Bobby Williamsson þjálfara, í Leifsstöð á leiðinni heim.

Því miður fyrir KR-inga var eins marks forskotið úr heimaleiknum ekki næg forysta. Naumt var það þó. Eftir 35 mínútna leik úti í Skotlandi var David Winnie Skotinn í vörn KR rekinn af velli með sitt annað gula spjald og þurftu þeir því að spila einum færri það sem eftir lifði leiks. Lengi vel leit út fyrir að niðurstaðan yrði 0-0, enda náðu Kilmarnock menn lítið að skapa sér. Klukkan sýndi 89 mínútur þegar Paul Wright skoraði fyrir Kilmarnock úr umdeildri vítaspyrnu. Lokatölur 1-0 og því þurfti að framlengja. Þegar í framlenginuna var komið voru KR-ingarnir orðnir dauðuppgefnir enda búnir að berjast einum færri í allan þennan tíma. Því skoruðu Skotarnir á annarri mínútu framlengingarinnar. 2-0 og Kilmarnock komnir í bílstjórasætið. Leiknum lauk 2-0 og KR-ingar úr leik. Ósanngjarnt vildu margir meina.

Undanfarin ár hefur Evrópukeppnin verið hálf snautleg þegar KR á í hlut ef undan er skilin stórkostleg frammistaða sumarið 2009. Þar slógu þeir út gríska liðið Larissa auk þess að standa vel upp í hárinu á Basel frá Sviss.Ég ætla ekki að rifja þá leiki upp þar sem þeir eru líklegast enn í fersku minni lesenda. Fylgist með á Sammaranum. Næst verða tekin fyrir afrek Skagamanna í Evrópu.

 

sjá einnig:

Valur snýtir frönskum stórliðum.  

 

Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
AE   |2010-07-20 19:24:59
Talandi um óvænt Evrópuúrslit. HB frá Færeyjum voru í þessum skrifuðu orðum að skella Salzburg frá Austurríki 1-0 !!

Ótrúlegir þessie færeyingar...
kári   |2010-07-21 02:59:05
Færeyingarnir töpuðu fyrri leiknum 5-0 og voru sennilega að spila við áhugalaust lið.

Kom mér á óvart að sjá hversu slakur Evrópuárangur KR var fram á miðjan tíunda áratuginn. Hins vegar glæsilegar framistöður gegn Everton og Dinamo.

Var eitthvað allt annað fyrirkomulag á hlutunum þarna? KR vann þarna einhverja Hvít-Rússa og mætti AIK í 32 liða úrstlitum. Núna finnst mér eins og íslensku liðin þurfi að slá út svona þrjú svipuð lið bara til að komast í 128 liða úrstlit eða eitthvað.
pallikr   |2010-07-21 11:10:24
Magnaðar minningar og skemmtileg upprifjun.
Hvað varðar fyrirkomulagið þá voru náttúrulega þrjár evrópukeppnir. Evrópukeppni bikarhafa þar sem það voru bikarmeistarar hvers lands. Evrópukeppni meistaraliða þar sem meistarar hvers lands voru. Svo var það evrópukeppni félagsliða. Liðið sem hafnaði í öðru sæti í landskeppni fór í þá keppni. Það var að minnsta kosti þannig hér á landi, en ég veit ekki hvort stærri þjóðir hafi átt fleiri fulltrúa í þeirria keppni.
En árangur KR 1996 var eftirtektarverður. Sérstaklega í því ljósi að við vorum grátlega nálægt því að slá svíana út. Þeir slógu svo út franska þriðju deildarliðið og mættu svo stórliði Barcelona í átta liða úrslitum. Það hefði verið saga til næsta bæjar ef stórveldin tvö, KR og Barcelona hefðu mæst í átta liða úrslitum í evrópukeppni.
Tumi   |2010-07-21 17:42:41
Þessar viðureignir KR gegn Everton voru stórskemmtilegar og algjört ævintýri að vera 0-1 yfir í hálfleik á Goodison þótt getumunurinn á liðunum væri svakalegur eins og sást í síðari hálfleik.

Sorglegt hvað íslensku liðunum gengur oft illa gegn skoskum liðum þrátt fyrir yfirburði. Til dæmis þessi viðureign gegn Kilmarnock og svo viðureign Skagans gegn Raith Rovers sem verður eflaust til umfjöllunar næst.

Vonandi standa Blikarnir sig annað kvöld!
Jonni   |2010-07-21 17:53:23
FH sló nú út Dunfermline
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
< Prev   Next >
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color