|
| 2. hluti - Ísland og Evrópa: Nokkur KR ævintýri |
|
|
|
| Höfundur: Ari | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Tuesday, 20 July 2010 | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Nú er komið af öðrum hluta í greinaröðinni Ísland og
Evrópa. Fyrir helgi rifjuðum
Enska liðið QPR dróst gegn KR
árið 1984
og lítil stemmning virtist vera fyrir leikjunum hér á landi. Fáir
áhorfendur
mættu í roki og rigningu á Laugardalsvöllinn til að sjá KR-inga
steinliggja fyrir
Drottningagarðsvörðunum frá London. Seinni leiknum sem fram fór á
Highbury lauk
einnig með tapi. 0-3. Árið 1991 mættu KR-ingar ítalska liðinu Torino með
stjörnurnar
Lentini og Scifo fremsta í flokki. KR-ingar Árið 1995 tók við lítið Evrópuævintýri hjá KR-ingum. Þeir fóru loksins í gegnum fyrstu umferð með samanlagt 4-3 sigri á Grevenmacher frá Lúxemborg. Í annarri umferðinni biðu sjálfir bikarmeistarar Englands. Everton. Þótt KR hafi aldrei átt alvöru möguleika gegn Everton þá veittu þeir þeim svo sannarlega harða keppni.
KR –
Everton 14. sept. 1995. 2-3 á Laugardalsvelli.
Þetta septemberkvöld fór fram einn æsilegasti leikur sem háður hefur verið á
Laugardalsvellinum. Bæði lið skiptust á að sækja, hraðinn var mikill og ekki
skemmdi stemmninginn fyrir enda um 6000 áhorfendur í stúkunni. Everton byrjaði
með látum og sótti mikið
Everton
– KR 28. Sept 1995. 3-1 á Goodison Park. Það óvænta gerðist á
Goodison Park í Liverpool að KR komst yfir gegn Everton og var meira að segja
með 0-1 forystu í hálfleik. Það sló þögn á þá 18422 áhorfendur er höfðu borgað sig inn á Goodison Park þegar Einar Þór
Daníelsson batt endi á vel útfærða skyndisókn með marki. Evertonmenn voru
sjokkeraðir og náðu lítið að skapa þrátt fyrir að vera meira með boltann, í
raun komst Gummi Ben næst því að skora þegar hann átti frábært skot af 20 metra
færi sem stefndi í sammarann.com en einungis markvarsla á heimsmælikvarða frá
Neville Southall kom í veg fyrir að KR-ingar færu með 0-2 forystu til
búningsherbergja. Everton náði betri tökum á leiknum eftir hlé og sóttu
látlaust. Tony Grant kom þeim yfir á 69 mínútu og Paul Rideout innsiglaði
Ári seinna árið 1996 gerðu KR-ingar sér vonir um frekari árangur í Evrópu og þeir voru grátlega nærri því að afreka stóra hluti en lánið lék ekki við þá. Þeir byrjuði á að fara í gegnum Mosyr frá Hvíta Rússlandi án mikillar fyrirhafnar. FH-ingar ATH lið frá Hvíta Rússlandi ;) !! Því næst tóku við sænsku bikarmeistararir í AIK í 32 liða úrslitum keppninar. AIK voru slakir og KR-ingar nýttu sér það ekki er þeir töpuðu klaufalega 0-1 í Laugardalnum. Undirrituðum er það helst minnistætt úr þessum leik að hann gegndi hlutverki boltastráks og gerðist svo djarfur að spyrja Magnus Hedman markmann AIK hvort hann væri ekki til í að gefa frá sér markmannshanskana. Hedman brosti bara og hristi hausinn. Útileikurinn endaði með 1-1 jafntefli þar sem Guðmundur Ben skoraði skemmtilegt mark. AIK dróst svo gegn franska 3 deildar liðinu Nimes í 16-liða úrslitum og sló það út án teljandi fyrirhafnar. Það segir sitt um möguleikana sem KR hefði átt.
Snoturt mark hjá Gumma Ben í lok myndbandsins.
Árið 1997 tefldu KR-ingar fram ógnarsterku liði. Það þarf
bara að líta á framherjasveitina sem þeir höfðu á að skipa til að sjá það.
Ríkharður Daðason, Guðmundur Ben, Andri Sigþórsson og já svo hafði
Árbæjarprinsinn Þórhallur Dan Jóhannsson villst í Vesturbæinn þetta sumarið. Miðjan var
heldur ekkert slor. Brynjar Gunnarsson og Heimir Guðjóns stórnuðu þar spilinu
af festu. Besti leikmaður KR á þessum tíma var samt án nokkurs vafa Einar Þór
Daníelsson og hann blómstraði sem aldrei fyrr í Evrópukeppninni. KR-ingar höfðu
eins og svo oft áður verið með allt niðrum sig í deildinni þrátt fyrir
yfirburðarmannskap. Því var Evrópukeppnin síðasta hálmstráið hjá Haraldi
Haraldssyni nýráðnum þjálfara KR-inga. Andstæðingarnir voru Dinamo Búkarest
rúmenskt stórlið sem hafði meðal annars komist í undanúrslit UEFA keppninnar 8
árum áður. Rúmenska deildin hafði þó verið að veikjast hægt og bítandi enda flestir
landsliðsmennirnir að spila í Vestur-Evrópu. Þó hafði Dinamo á að skipa fínu
liði og í markinu var meðal annars rúmensk HM 94 hetja. Florian Prunea að nafni
auk nokkurra U21 landsliðsmanna.
KR –
Dinamo Búkarest 23. Júlí 1997. 2-0 á Laugardalsvelli: Eins
og áður er getið var KR hópurinn gríðarlega vel mannaður þetta sumarið en þó
voru þeir
Dinamo
Búkarest – KR 31. Júlí 1997. 1-2 í Búkarest: Einhver bestu úrslit
íslensk liðs fyrr og síðar litu dagsins ljós í óvinveittum aðstæðum í Rúmeníu. Í
það minnsta voru aðstæðurnar óvinveittar til að byrja með. Hörðustu stuðningsmenn
Dinamo tóku á móti KR-ingum með því að kasta ýmsum
KR-ingar mættu næst OFI frá Grikklandi sem áttu að vera
af svipuðum styrkleika og Dinamo. Því miður fyrir KR-inga var Ríkharður meiddur
í fyrri leiknum og var hans sárt saknað. KR-ingar áttu heimaleikinn á undan og
réðu ferðinni frá upphafi til enda. Grikkirnir ógnuðu KR markinu ekkert og áttu
einugis eitt skot á markið á meðan KR-ingar klúðruðu hverju færinu á fætur
öðru. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli og ljóst var að róðurinn úti í Grikklandi
yrði erfiður því OFI menn höfðu einungis tapað einum heimaleik tvö árin á
undan. KR-ingar voru þó í góðum málum lengi framan af. Staðan var 1-1 eftir
mark frá Hilmari Björnssyni allt fram á 65 mínútu en þá skoruðu OFI menn 2 mörk
með skömmu millibili og leiknum lauk með 1-3 tapi. Svekkjandi tap en færaklúðrin
á heimavelli eyðilögðu vonir KR-inga. OFI féll svo úr leik í næstu umferð á
eftir gegn Atletico Madrid.
KR –
Kilmarnock 12. ágúst 1999. 1-0 á Laugardalsvelli:
Sumarið 1999 var sankallaður stórveldisbragur á KR-ingum. Þeir héldu upp á
aldarafmæli félagsins með því að valta yfir allar keppnir á Íslandi bæði í
karla og kvennaflokki. Þeir mættu því fullir sjálfstraust til leiks gegn skoska
liðinu
Því miður fyrir KR-inga var eins marks forskotið úr heimaleiknum
ekki næg forysta. Naumt var það þó. Eftir 35 mínútna leik úti í Skotlandi var
David Winnie Skotinn í vörn KR rekinn af velli með sitt annað gula spjald og
þurftu þeir því að spila einum færri það sem eftir lifði leiks. Lengi vel leit
út fyrir að niðurstaðan yrði 0-0, enda náðu Kilmarnock menn lítið að skapa sér.
Klukkan sýndi 89 mínútur þegar Paul Wright skoraði fyrir Kilmarnock úr
umdeildri vítaspyrnu. Lokatölur 1-0 og því þurfti að framlengja. Þegar í
framlenginuna var komið voru KR-ingarnir orðnir dauðuppgefnir enda búnir að
berjast einum færri í allan þennan tíma. Því skoruðu Skotarnir á annarri mínútu
framlengingarinnar. 2-0 og Kilmarnock komnir í bílstjórasætið. Leiknum lauk 2-0
og KR-ingar úr leik. Ósanngjarnt vildu margir meina. Undanfarin ár hefur Evrópukeppnin verið hálf snautleg þegar KR á í hlut ef undan er skilin stórkostleg frammistaða sumarið 2009. Þar slógu þeir út gríska liðið Larissa auk þess að standa vel upp í hárinu á Basel frá Sviss.Ég ætla ekki að rifja þá leiki upp þar sem þeir eru líklegast enn í fersku minni lesenda. Fylgist með á Sammaranum. Næst verða tekin fyrir afrek Skagamanna í Evrópu.
sjá einnig: Valur snýtir frönskum stórliðum.
Powered by !JoomlaComment 3.26
3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved." |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| < Prev | Next > |
|---|








