Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða arrow Greinasafn arrow Íslenski boltinn arrow Stóra Bjarna Guðjóns samsærið
Stóra Bjarna Guðjóns samsærið PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Bjössi   
Monday, 19 July 2010

 Vissulega ætti að vera spurningamerki aftast í fyrirsögninni en hún er meira krassandi svona. Eins og margir KR-ingar hef ég nánast allt tímabilið klórað mig til blóðs í hausnum yfir samhljóma lofsöng íslenskra fjölmiðla yfir frammistöðu Bjarna Guðjónssonar í sumar. Aftur og aftur á Bjarni afleita leiki og menn segja hver við annan í stúkunni „hvað ætli hann fái nú mörg m fyrir þetta?“. Iðulega stendur hann svo uppi sem besti maður vallarins að mati fjölmiðlamanna, alveg óháð því hvernig hann stóð sig á vellinum. Eftir leik Hauka og KR í gær var mál manna að Bjarni hefði verið versti leikmaður vallarins og heyrði ég menn sem komu heim af vellinum halda því fram að þetta hafi verið lélegasti leikur Bjarna í sumar. Þrátt fyrir það fékk hann m í Morgunblaðinu.

Ég hef velt þessum stórundarlegu vinnubrögðum fjölmiðlamanna rækilega fyrir mér og hef dottið niður á tvær kenningar, sem ég tel líklegastar. Þá er ekki talin sá möguleiki að ég hafi gengið inn í einhvers konar Vesturbæjarútgáfu af Twilight Zone fyrr í sumar.

Fyrst skal þó tekið fram að Bjarni er, að mér skilst, vel liðin í KR og fyrirmyndar atvinnumaður. Hann hefur staðið sig vel nánast hvar sem hann hefur leikið og átti mjög gott tímabil með KR í fyrra, þegar hann loks fékk að fara á miðjuna. Í sumar hefur hins vegar ekkert gengið upp hjá stráknum. Hann er ekki eins fyrirferðarmikill varnarlega, símissandi boltann og mjög misjafn í föstum leikatriðum. Næst þegar þið sjáið Bjarna spila mæli ég með að þið fylgist með því hvað hann gefur ítrekað krefjandi sendingar á samherja sína. 40 metra sprengjur upp kantinn eru greinilega í miklu uppáhaldi hjá honum en þær heppnast ekki nærri nógu oft til að réttlæta tíðni þeirra.

En hvers vegna eru fjölmiðlamenn þá á einu máli (bið þá afsökunar sem ég er ranglega að blanda í þennan hóp, ef einhverjir eru) um að Bjarni sé að rúlla upp deildinni með hverjum frábærum leiknum á fætur öðrum? Hvers vegna er hann t.d. í úrvalsliði Morgunblaðsins sem birt var um daginn?

Samsæriskenningin

Fyrri kenning mín varðandi þetta dularfulla mál er klassísk samsæriskenning. Skv. henni vita menn að Bjarni er að standa sig illa sem kjósa samt sem áður að ljúga að lesendum og segja hann skara fram úr. Kannski á Bjarni marga félaga meðal fjölmiðlamanna sem kunna illa við annað en að hrósa honum. Hverri samsæriskenningu fylgir sú pæling hver hagnist á samsærinu. Bjarni gerir það vissulega og kannski þeir sem fjárfestu í honum. En það verður þó að segjast að samsæriskenningin er ansi langsótt, enda væri um mjög umfangsmikið samsæri að ræða og ég skil ekki beint að menn ættu að nenna að taka þátt í því.

Það er þó einn annar vinkill til á Samsæriskenningunni. Það er vitað að KR er ekki beint vinsælasta liðið á landinu og væntanlega er mörgum fjölmiðlamönnum afar illa við þá svarthvítu. Kannski er þetta bara innanhússhúmor í heimi íþróttafréttamennskunnar. Ég sé fyrir mér þá helstu hittast í reykfylltu glansherbergi á Laugardalsvellinum og koma sér saman um að gefa Bjarna Guðjóns alltaf topp einkunn, það væri svo fyndið.


Letikenningin

Hin kenningin tengist leti þeirra sem fjalla um leikina. Það er vissulega auðvelt að henda alltaf flottri einkunn á stærsta nafnið og réttlæta hana með einhverri þvælu ef að er spurt. Þá er hægt að tala um að hann hafi haft góðan talanda, stýrt spilinu vel, leitt sína menn til sigurs eða stigs, ekki gefist upp osfrv., væntanlega alveg óháð því hvort eitthvert þessara atriða hafi átt við, þau bara hljóma sem þokkalegasta útskýring á góðri einkunn.

Nú er ég ekki meiri spekúlant en flestir þeirra sem lesa þessa síðu en ég neita að trúa því að þeir sem hafa eitthvað vit á fótbolta geti með pókerfeisi haldið því fram að Bjarni sé að standa sig það vel að hann verðskuldi þessa góðu umfjöllun. Einhver hlýtur þó skýringin að vera. Twilight Zone kenningin og Samsæriskenningin eru nokkuð langsóttar, Letikenningin þykir mér sennilegri. En þegar öllu er á botninn hvolft virðast, af minni reynslu, þeir sem horfa á KR-inga í hverri viku sammála um að Bjarni sé ekki að standa sig vel. Fjölmiðlamenn eru hins vegar á gjörólíkri skoðun og telja hann einn allra besta leikmann deildarinnar og einn bestu manna vallarins í hverjum einasta leik.

Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
Stefán G.   |2010-07-19 11:42:36
Ég hef séð einn og hálfan leik með KR í sumar eftir að ég flutti heim. Í Evrópuleiknum fannst mér Bjarni mjög góður. Í fyrri hálfleiknum í gær var hann alveg á hælunum allan tímann, hvort sem þreytu er um að kenna eða hvað.

Raunar var frammistaða liðsins alls svo slæm í fyrri hálfleik að ég vildi ekki horfa upp á fimm eða sex marka tap gegn botnliðinu og ákvað því að fara í hálfleik. Það er í fyrsta sinn á ævinni sem ég fer snemma af KR-leik svo ég muni.
Jónsi   |2010-07-19 11:43:00
hallast nú frekar að letikenningunni, iðulega eru leikirnir á kvöldin og stutt í að blöðin fari í prentun... blaðamennirnir líta sennilega yfir nafnalistann í fljótheitum og henda einkunn/M á menn og þá hjálpar líklega nafnið til...

eins og spilamennska KR hefur verið er líklegt að fáir verðskuldi góða einkunn og þá er sennilega hæstu einkunninni hent á stærsta nafnið, NB hef ekki lagst í rannsóknarvinnu á þessu þ.a. þetta er aðeins ágiskun
Elías   |2010-07-19 12:23:25
Eins með mína menn í Stjörnunni og Steinþór Frey. Þó hann spili yfirleitt mjög vel og fái verðskuldað m að þá fær hann líka m þegar hann spilar hreint illa. Oft furðulegt að lesa um m-frammistöður Steinþórs þegar ég sá e-ð allt annað á vellinum
Maggivb     |2010-07-20 00:21:18
ég skrifa sjálfur fyrir fotbolta.net og er nokkuð sammála þessari grein en hann er ekkert einsdæmi um þetta. Held að ástæðan fyrir þessum upphífingum séu oftar en ekki lykilatriði sem allir taka eftir, kannski aukaspyrna eða hornspyrna sem verður að marki eða einhver sending þar sem annar leggur upp mark og oftar er það ekki frammistaða annarra sem verð að verkum að þessir menn séu lofsamaðir. Gott dæmi um þetta er t.d. Andri Ólafsson hjá ÍBV, vissilega búinn að eiga gott tímabil með þeim en hver er ástæðan, hann þarf ekki að sinna neinu varnarhlutverki því Finnur Ólafsson sér algjörlega um það, enginn virðist hafa tekið eftir því. Þetta er bara eitt lítið dæmi og eru fjölmörg svipuð dæmi, frammistaða eins leikmanns leiðir til hróss hjá öðrum. Barátta getur líka smitað út frá sér, mér finnst KR einfaldlega búnir að vera mökk lélegir í sumar og þá nánast sama hvaða leikmann um ræðir.
Anonymous   |2010-07-20 01:11:34
Mér finnst eitt áhugaverðara hjá KR en Bjarni Guðjóns. Hvað gera Rúnar Kristins og Pétur Marteins allan daginn þarna? Yfirmenn knattspyrnumála? WTF. Við erum að tala um KR, ekki Chelsea eða eitthvað. Er nauðsynlegt að hafa þá þarna á góðum launum? Rúnar er svo líka á bekknum í leikjum og núna tekinn við liðinu, hann hefur svo fullt að segja um þá sem koma til liðsins. Hver er hans ábyrgð í þessu slæma gengi?
Björn T   |2010-07-20 10:10:04
Þetta er bara nákvæmlega sama dæmið og með Heimir Guðjóns þegar hann var á síðustu metrunum hjá FH. Þrátt fyrir að Baldur Bett skilaði miklu meiri vinnu en gamli maðurinn þá sat hann alltaf uppi með flest m-in. Breytti engu þó hann hafi ekki getað hlaupið 100 m á undir 20 sek.
Haukamaður   |2010-07-21 16:43:32
Bjarni átti gott tímabil í fyrra. Hinsvegar er hann búinn að vera slakur í ár eins og allt KR liðið. Samt er hann kominn með 11M hjá mogganum á meðan leikmaður eins og Tryggvi Guðmundsson hjá ÍBV er aðeins með 7M. Þess má geta að Tryggvi hefur lagt upp og skorað rjóman af þeim mörkum fyrir ÍBV í sumar sem um leið hefur skilað þeim toppsætinu ásamt Breiðablik. Ég tek meira mark á DV heldur en þessu mogga gríni.
Pétur M   |2010-07-22 19:16:18
Bjarni Guðjóns í liði 11. umferðar hjá Mogganum, og það í 4. skiptið minnir mig...
Hafrún   |2010-07-23 18:00:54
Það er búið að gera lærða rannsókn á einkunargjöf blaðamanna. Flestu min fá að jafnaði þeir sem blaðamennirnir taka mest eftir, þ.e. þeir sem þeir eru oftast með augun á. Að jafnaði eru það miðjumennirnir því þeir eru oftast með boltan, eða gefa boltann oftast. Bjarni er áberandi í KR. m.a. vegna þess að hann tekur föst leikatriði skilst mér og er einmitt í þessum löngu sendingum. Það að það sé gefið svona fyrir er hægt að skýra út með frekar einfoldum sálfræði kenningum.

Svo bættu við athygliskenningunni þarna við..... min fær sá sem athyglin er á óháð (nánast) hvernig hann spilar.
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
< Prev   Next >
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color