Skip to content

Sammarinn

Nżjasti žįttur

You are here: Forsķša
Stóra Bjarna Gušjóns samsęriš PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Bjössi   
Monday, 19 July 2010

 Vissulega ætti að vera spurningamerki aftast í fyrirsögninni en hún er meira krassandi svona. Eins og margir KR-ingar hef ég nánast allt tímabilið klórað mig til blóðs í hausnum yfir samhljóma lofsöng íslenskra fjölmiðla yfir frammistöðu Bjarna Guðjónssonar í sumar. Aftur og aftur á Bjarni afleita leiki og menn segja hver við annan í stúkunni „hvað ætli hann fái nú mörg m fyrir þetta?“. Iðulega stendur hann svo uppi sem besti maður vallarins að mati fjölmiðlamanna, alveg óháð því hvernig hann stóð sig á vellinum. Eftir leik Hauka og KR í gær var mál manna að Bjarni hefði verið versti leikmaður vallarins og heyrði ég menn sem komu heim af vellinum halda því fram að þetta hafi verið lélegasti leikur Bjarna í sumar. Þrátt fyrir það fékk hann m í Morgunblaðinu.

Ég hef velt þessum stórundarlegu vinnubrögðum fjölmiðlamanna rækilega fyrir mér og hef dottið niður á tvær kenningar, sem ég tel líklegastar. Þá er ekki talin sá möguleiki að ég hafi gengið inn í einhvers konar Vesturbæjarútgáfu af Twilight Zone fyrr í sumar.

Fyrst skal þó tekið fram að Bjarni er, að mér skilst, vel liðin í KR og fyrirmyndar atvinnumaður. Hann hefur staðið sig vel nánast hvar sem hann hefur leikið og átti mjög gott tímabil með KR í fyrra, þegar hann loks fékk að fara á miðjuna. Í sumar hefur hins vegar ekkert gengið upp hjá stráknum. Hann er ekki eins fyrirferðarmikill varnarlega, símissandi boltann og mjög misjafn í föstum leikatriðum. Næst þegar þið sjáið Bjarna spila mæli ég með að þið fylgist með því hvað hann gefur ítrekað krefjandi sendingar á samherja sína. 40 metra sprengjur upp kantinn eru greinilega í miklu uppáhaldi hjá honum en þær heppnast ekki nærri nógu oft til að réttlæta tíðni þeirra.

En hvers vegna eru fjölmiðlamenn þá á einu máli (bið þá afsökunar sem ég er ranglega að blanda í þennan hóp, ef einhverjir eru) um að Bjarni sé að rúlla upp deildinni með hverjum frábærum leiknum á fætur öðrum? Hvers vegna er hann t.d. í úrvalsliði Morgunblaðsins sem birt var um daginn?

Samsæriskenningin

Fyrri kenning mín varðandi þetta dularfulla mál er klassísk samsæriskenning. Skv. henni vita menn að Bjarni er að standa sig illa sem kjósa samt sem áður að ljúga að lesendum og segja hann skara fram úr. Kannski á Bjarni marga félaga meðal fjölmiðlamanna sem kunna illa við annað en að hrósa honum. Hverri samsæriskenningu fylgir sú pæling hver hagnist á samsærinu. Bjarni gerir það vissulega og kannski þeir sem fjárfestu í honum. En það verður þó að segjast að samsæriskenningin er ansi langsótt, enda væri um mjög umfangsmikið samsæri að ræða og ég skil ekki beint að menn ættu að nenna að taka þátt í því.

Það er þó einn annar vinkill til á Samsæriskenningunni. Það er vitað að KR er ekki beint vinsælasta liðið á landinu og væntanlega er mörgum fjölmiðlamönnum afar illa við þá svarthvítu. Kannski er þetta bara innanhússhúmor í heimi íþróttafréttamennskunnar. Ég sé fyrir mér þá helstu hittast í reykfylltu glansherbergi á Laugardalsvellinum og koma sér saman um að gefa Bjarna Guðjóns alltaf topp einkunn, það væri svo fyndið.


Letikenningin

Hin kenningin tengist leti þeirra sem fjalla um leikina. Það er vissulega auðvelt að henda alltaf flottri einkunn á stærsta nafnið og réttlæta hana með einhverri þvælu ef að er spurt. Þá er hægt að tala um að hann hafi haft góðan talanda, stýrt spilinu vel, leitt sína menn til sigurs eða stigs, ekki gefist upp osfrv., væntanlega alveg óháð því hvort eitthvert þessara atriða hafi átt við, þau bara hljóma sem þokkalegasta útskýring á góðri einkunn.

Nú er ég ekki meiri spekúlant en flestir þeirra sem lesa þessa síðu en ég neita að trúa því að þeir sem hafa eitthvað vit á fótbolta geti með pókerfeisi haldið því fram að Bjarni sé að standa sig það vel að hann verðskuldi þessa góðu umfjöllun. Einhver hlýtur þó skýringin að vera. Twilight Zone kenningin og Samsæriskenningin eru nokkuð langsóttar, Letikenningin þykir mér sennilegri. En þegar öllu er á botninn hvolft virðast, af minni reynslu, þeir sem horfa á KR-inga í hverri viku sammála um að Bjarni sé ekki að standa sig vel. Fjölmiðlamenn eru hins vegar á gjörólíkri skoðun og telja hann einn allra besta leikmann deildarinnar og einn bestu manna vallarins í hverjum einasta leik.

Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
Stefįn G.   |2010-07-19 11:42:36
Ég hef séš einn og hįlfan leik meš KR ķ sumar eftir aš ég flutti heim. Ķ Evrópuleiknum fannst mér Bjarni mjög góšur. Ķ fyrri hįlfleiknum ķ gęr var hann alveg į hęlunum allan tķmann, hvort sem žreytu er um aš kenna eša hvaš.

Raunar var frammistaša lišsins alls svo slęm ķ fyrri hįlfleik aš ég vildi ekki horfa upp į fimm eša sex marka tap gegn botnlišinu og įkvaš žvķ aš fara ķ hįlfleik. Žaš er ķ fyrsta sinn į ęvinni sem ég fer snemma af KR-leik svo ég muni.
Jónsi   |2010-07-19 11:43:00
hallast nś frekar aš letikenningunni, išulega eru leikirnir į kvöldin og stutt ķ aš blöšin fari ķ prentun... blašamennirnir lķta sennilega yfir nafnalistann ķ fljótheitum og henda einkunn/M į menn og žį hjįlpar lķklega nafniš til...

eins og spilamennska KR hefur veriš er lķklegt aš fįir veršskuldi góša einkunn og žį er sennilega hęstu einkunninni hent į stęrsta nafniš, NB hef ekki lagst ķ rannsóknarvinnu į žessu ž.a. žetta er ašeins įgiskun
Elķas   |2010-07-19 12:23:25
Eins meš mķna menn ķ Stjörnunni og Steinžór Frey. Žó hann spili yfirleitt mjög vel og fįi veršskuldaš m aš žį fęr hann lķka m žegar hann spilar hreint illa. Oft furšulegt aš lesa um m-frammistöšur Steinžórs žegar ég sį e-š allt annaš į vellinum
Maggivb     |2010-07-20 00:21:18
ég skrifa sjįlfur fyrir fotbolta.net og er nokkuš sammįla žessari grein en hann er ekkert einsdęmi um žetta. Held aš įstęšan fyrir žessum upphķfingum séu oftar en ekki lykilatriši sem allir taka eftir, kannski aukaspyrna eša hornspyrna sem veršur aš marki eša einhver sending žar sem annar leggur upp mark og oftar er žaš ekki frammistaša annarra sem verš aš verkum aš žessir menn séu lofsamašir. Gott dęmi um žetta er t.d. Andri Ólafsson hjį ĶBV, vissilega bśinn aš eiga gott tķmabil meš žeim en hver er įstęšan, hann žarf ekki aš sinna neinu varnarhlutverki žvķ Finnur Ólafsson sér algjörlega um žaš, enginn viršist hafa tekiš eftir žvķ. Žetta er bara eitt lķtiš dęmi og eru fjölmörg svipuš dęmi, frammistaša eins leikmanns leišir til hróss hjį öšrum. Barįtta getur lķka smitaš śt frį sér, mér finnst KR einfaldlega bśnir aš vera mökk lélegir ķ sumar og žį nįnast sama hvaša leikmann um ręšir.
Anonymous   |2010-07-20 01:11:34
Mér finnst eitt įhugaveršara hjį KR en Bjarni Gušjóns. Hvaš gera Rśnar Kristins og Pétur Marteins allan daginn žarna? Yfirmenn knattspyrnumįla? WTF. Viš erum aš tala um KR, ekki Chelsea eša eitthvaš. Er naušsynlegt aš hafa žį žarna į góšum launum? Rśnar er svo lķka į bekknum ķ leikjum og nśna tekinn viš lišinu, hann hefur svo fullt aš segja um žį sem koma til lišsins. Hver er hans įbyrgš ķ žessu slęma gengi?
Björn T   |2010-07-20 10:10:04
Žetta er bara nįkvęmlega sama dęmiš og meš Heimir Gušjóns žegar hann var į sķšustu metrunum hjį FH. Žrįtt fyrir aš Baldur Bett skilaši miklu meiri vinnu en gamli mašurinn žį sat hann alltaf uppi meš flest m-in. Breytti engu žó hann hafi ekki getaš hlaupiš 100 m į undir 20 sek.
Haukamašur   |2010-07-21 16:43:32
Bjarni įtti gott tķmabil ķ fyrra. Hinsvegar er hann bśinn aš vera slakur ķ įr eins og allt KR lišiš. Samt er hann kominn meš 11M hjį mogganum į mešan leikmašur eins og Tryggvi Gušmundsson hjį ĶBV er ašeins meš 7M. Žess mį geta aš Tryggvi hefur lagt upp og skoraš rjóman af žeim mörkum fyrir ĶBV ķ sumar sem um leiš hefur skilaš žeim toppsętinu įsamt Breišablik. Ég tek meira mark į DV heldur en žessu mogga grķni.
Pétur M   |2010-07-22 19:16:18
Bjarni Gušjóns ķ liši 11. umferšar hjį Mogganum, og žaš ķ 4. skiptiš minnir mig...
Hafrśn   |2010-07-23 18:00:54
Žaš er bśiš aš gera lęrša rannsókn į einkunargjöf blašamanna. Flestu min fį aš jafnaši žeir sem blašamennirnir taka mest eftir, ž.e. žeir sem žeir eru oftast meš augun į. Aš jafnaši eru žaš mišjumennirnir žvķ žeir eru oftast meš boltan, eša gefa boltann oftast. Bjarni er įberandi ķ KR. m.a. vegna žess aš hann tekur föst leikatriši skilst mér og er einmitt ķ žessum löngu sendingum. Žaš aš žaš sé gefiš svona fyrir er hęgt aš skżra śt meš frekar einfoldum sįlfręši kenningum.

Svo bęttu viš athygliskenningunni žarna viš..... min fęr sį sem athyglin er į óhįš (nįnast) hvernig hann spilar.
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
< Prev   Next >
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color