1. hluti - Ísland og Evrópa: Valur snýtir frönskum stórliðum
Höfundur: Ari
Friday, 16 July 2010
Nú hafa þrjú af fjórum íslensku liðunum í Evrópukeppnunum farið halloka gegn úkraínskum og hvít-rússneskum „snillingum“. Tel ég mig getað talað fyrir hönd flestra íslenskra knattspyrnuáhugamanna þegar ég segist vera búinn að fá nóg af því að sjá íslensku liðin skíttapa gegn Austantjaldsliðum. Ég er ekki frá því að hvert eitt og einasta ríki fyrrum Sovétríkjanna hafi kíkt í heimsókn á íslenska knattspyrnuvelli á undanförnum 5-10 árum. Því fannst mér tilvalið að rölta niður stíg minninganna og rifja upp afrek íslenskra liða á þessum vettvangi. Fyrst tek ég fyrir Valsmenn. Ég verð nú að viðurkenna það að afrek Valsmanna í Evrópu á níunda áratug síðustu aldar er ekkert til að skammast sín fyrir og er framganga þeirra ein af bestu frammistöðum íslensks liðs í Evrópukeppni. Þeir sigruðu frönsk lið í tvígang 1985 og 1988. Í millitíðinni árið 1987 féllu þeir naumlega út gegn Austur þýsku meisturunum á útivallarmarki eftir tvö jafntefli heima og að heiman. KSÍ var sektað eftir rimmunar þar sem leikmaður Austur þjóðverjanna fékk öldós í höfuðið á heimaleik Vals. Já Valsmenn áttu ekki bara gott fótboltalið á níunda áratugnum þeir áttu meira að segja fótboltabullur líka! Nú hafa þeir flestir umbreyst í textavarps stuðningsmenn sem mæta varla á völlinn.
Valur - Nantes 17 sept 1985. 2-1 sigur á LaugardalsvelliValur hóf keppni í UEFA keppninni þetta haustið gegn franska stórliðinu Nantes. Franska liðið hafði á að skipa mörgum stórstjörnum. Þar ber helst að nefna miðjumannin og þá nýkrýndan Evrópumeistara með franska landsliðinu Jose Toure. Leikurinn þróaðist eins og oft vill verða þegar lítil áhugamannalið mæta stórum atvinnumannaliðum. Valsmenn lágu í skotgröfunum en beittu samt stórhættulegum skyndisóknum. Staðan var 0-0 í hálfleik og varnarlína Vals með bindindismanninn Þorgrím Þráinsson fremstan í flokki varðist öllum áhlaupum frönsku snillinganna. Í seinni hálfleik var komið að þætti Guðmundar Þorbjörnssonar sem hafði nokkrum dögum áður verið kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins. Guðmundur skoraði 2 glæsileg mörk og þar af sigurmarkið skömmu fyrir leikslok en í millitíðinni hafði Toure jafnað leikinn. Valsmenn héldu út og fögnuðu í leikslok innilega einum glæstasta sigri íslensks lið í Evrópu. Vörn Valsmanna var annáluð á þessum tíma fyrir þéttleika og steig vart feilspor í leiknum auk þess sem Stefán Arnarsson KR-ingur og núverandi handknattleiksþjálfari kvennaliðs Vals stóð markmannsvaktina af stakri prýði. Því miður fyrir Valsmenn var 2-1 forskot ekki næg forysta því seinni leikurinn úti í Frakklandi endaði með 0-3 tapi. Samt sem áður eftirtektarverð frammistaða Valsmanna.
Ég smellti mér á www.timarit.is og skoðaði umfjöllum íslensku dagblaðanna eftir leikinn. Það má segja að frönsku leikmennirnir tekið tapinu illa og vildu þeir meina að lélegur völlur, úrhellisrigning og birtuskilyrði hafi gert gæfumuninn í sigri Valsmanna. Grípum niður í viðtal sem blaðamaður DV tók við Jose Toure stjörnu þeirra Nantes manna.
Jose Toure:„Ég er mjög vonsvikinn, það máttu bóka. Smæð vallarins, rigningin, hitastigið og ásigkomulag grassins er heimaliðinu í hag“ sagði besti leikmaður Nantes og franskur landsliðsmaður.Vanmátuð þið Valsliðið?„Nei alls ekki! Aðstæður buðu ekki upp á að við gætum tjáð okkur, leikið á eðlilegan hátt.“Voruð þið ekki nógu ákveðnir?„Aðstæðurnar buðu ekki upp á góðan leik“ svaraði Toure út í hött. „Við fórum úr sambandi þegar það byrjaði allt í einu að rigna svona rosalega. Völlurinn var háll og í því samhengi verður að skoða ósigur okkar."Er það ekki niðurlæging að tapa gegn áhugamönnum?„Áhugamönnum? Gera þeir nokkuð annað en að spila fótbolta? Ég veit það ekki. Það er ekki lengur svo mikill munur á liðum. Það verður að taka litlu liðin alvarlega.“Fannst þér einhverjir leikmenn Vals öðrum betri?„Nei ég tók ekki eftir neinum sérstökum“ sagði Jose Toure að lokum. Þessi sterki leikmaður gerði enga tilraun til að leyna vonbrigðum sínum og var næsta styggur við blaðamenn.
Valur - Monaco 06 sept 1988 1-0 sigur á Laugardalsvelli
Þremur árum seinna var franskt stórlið aftur mætt í Laugardalinn og jú tapsári Íslandsvinurinn Jose Toure var einnig meðferðis, en hann hafði skömmu áður verið seldur frá Nantes til Monaco. Monaco var stórlið á Evrópska vísu enda Frakklandsmeistarar. Arsene Wenger þjálfaði liðið sem skartaði stjörnum á borð við Mark Hateley, Glenn Hoddle, Manuel Amoros og ungum og upprennandi Afríkubúa aðnafni George Weah. Líberíumaðurinn sem síðar átti eftir að verða besti knattspyrnumaður heims var reyndar meiddur í fyrri leiknum, en hann spilaði síðari leikinn og skoraði gull af marki. Bretinn Ian Ross sem þjálfaði Hlíðarendaliðið þetta sumarið lét liðið spila einfaldan og árangursríkan fótbolta. Varnarleikur Valsara á þessum árum var einstakur og fengu þeir að meðaltali 10-15 mörk á sig á hverju sumri. Enda engir smá jaxlar í vörninni. Guðni Bergs, Sævar Jóns, Þorgrímur Þráinsson og Magni Blöndal. Besti leikmaður Valsliðsins þetta sumarið var samt sem áður sóknarmaðurinn Atli Eðvaldsson. Sóknarleikur Valsmann gekk hreinlega út á það að Atli ynni skallabolta. Atli vann hvern einn og einasta skallabolta sem hann fór upp í á móti íslenskum liðum og það kom fljótlega í ljós að lærisveinar Wengers áttu heldur ekki fræðilegan möguleika í loftinu gegn rauðbirkna risanum. Þremur árum áður lágu Valsmenn í vörn gegn Nantes en innbyrtu þrátt fyrir það 2-1 sigur. Nú var raunin önnur. Valsmenn vörðust vitaskuld mjög vel en þeir leyfðu stjörnunum Hoddle og Amoros ekki að komast upp með neitt á miðjunni og það voru Íslendingarnir sem hreinlega stjórnuðu leiknum.Valssóknirnar dundu að marki Monaco sem loks skilaði sér í glæsilegu samspilsmarki sem Atli Eðvaldsson kláraði glæsilega. Lokatölur voru 1-0 en með réttu hefði leikurinn átti að enda 2 til 3-0.Ég kannaði hvað fjölmiðlar höfðu að segja eftir þennan glæsta sigur Valsmanna. Fransmennirnir voru enn við sama heygarðshornið. Kenndu lélegum vallaraðstæðum um en voru þó ekki eins tapsárir og Nantes mennirnir þremur árum áður. Hér koma nokkur comment sem íslenskir blaðamenn höfðu eftir Monaco mönnunum.
Arsene Wenger:„Heppnin var með okkur“Manuel Amoros: „Þetta var erfiður leikur, við ætluðum að sækja en pökkuðum ósjálfrátt í vörn. Atli Eðvaldsson er stórhættulegur skallamaður og við vorum dauðhræddir í hvert skipti sem hann fékk boltann. Við höfðum ekkert í hann að gera í loftinu.“Glenn Hoddle:„Valsliðið minnti mig á Wimbledon í þessum leik. Við hefðum samt vel getað tapað 3-0“
Það var ljóst að 1-0 forysta var ansi lítil þegar út til Monaco var komið. Frakkarnir þurftu þó að hafa sig allan við en þeir höfðu að lokum 2-0 sigur þar sem lánið lék ekki við Valsmenn. Undir lok leiksins pressuðu Valsmenn stíft en allt kom fyrir ekki. Monaco skreið áfram gegn íslensku áhugamönnunum. Þessi viðureign mun líkast til lifa lengi í minningum Valsmanna sem og Líberíumannins George Weah sem spilaði sinn fyrsta Evrópuleik og auðvitað var það hann sem gerði út um Evrópudraum Valsmanna með ótrúlegu marki. Þetta hafði Weah að segja um leikinn.
George Weah:„Ég lék á tvo menn og leit þá upp og sá möguleikann á að skjóta. Ég hitti boltann vel og það er reglulega gaman að skora svona mark. Vörn Vals er erfið viðureignar og vel skipulögð“
Valsmenn hafa ekki náð markverðum árangri í Evrópu undanfarin 20 ár og líklegast þurfa þeir að bíða nokkuð lengi eftir að samskonar Evrópuævintýri endurtaki sig.
Fylgist með hér á Sammaranum. Næst verða tekin fyrir Evrópuævintýri KR-inga. Af nógu er að taka ;)
Maður er alveg kominn með upp í kok af því að horfa upp á meistara FH láta einhverja úzbeka valta yfir sig. Ég samt veit ekki hvort þetta sé eitthvað að breytast. Málið er að nútíma hliðstæður Guðna Bergs, Þorgríms Þráinssonar og fleiri í þessari grein eru að spila með einhverjum meðalliðum hér og þar um álfuna.
Já kannski ágætt líka að nefna það að Monaco lauk svo loks keppni í undanúrslitum Evrópukeppninnar þetta tímabil 88/89, þrátt fyrir brösuga byrjun í fyrstu umferð gegn Val.
Flott grein. Það skiptust svo á skin og skúrir hjá íslensku liðunum á þessum árum sem töpuðu oft stórt gegn hinu ýmsu liðum en rifu sig upp inn á milli og náðu mögnuðum úrslitum.
Smá leiðrétting. Það var Hörður Helgason sem stjórnaði Val gegn Mónakó en Ross gegn Nantes.
haha djöfull var Toure viðbjóðslega bitur eftir þennan leik! Þvílík snilld.
Verð að viðurkenna að ég hafði ekki hugmynd um að Arséne Wenger minn maður hafði komið hér með Monaco!
Endilega haldið áfram með þessar greinar.
Takk fyrir ábendinguna Don Brandt. En já Toure var skiljanlega bitur, því með nokkurra ára millibili spilaði hann þrívegis á Laugardalsvellinum og aldrei náði hann að standa uppi sem sigurvegari. Franska landsliðið spilaði einmitt gegn því íslenska í millitíðinni á þessum Evrópuleikjum og þar grísuðust við á jafntefli.
En já svo gleymdi ég að minnast á það í greininni að Valsmenn beittu öllum brögðum til að tefja leikinn gegn Nantes. Skiljanlega svosem. Þetta mikla varnarlið sem Valsmenn voru á þessum tíma höfðu þetta sumarið nýtt sér það óspart þegar þeir höfðu forystu að markmaðurinn sem þá var Stefán Arnarsson rúllaði boltanum á næsta varnarmann og varnarmaðurinn skilaði svo boltanum aftur í hendur markmannsins. Þetta var auðvitað leyfilegt á þessum tíma Nema hvað UEFA hafði víst fyrir keppnistímabilið 85/86 sett nýja reglu. Þegar markmaður gæfi á varnarmann þá þyrfti hann að gefa í það minnsta á einn samherja í viðbót áður en þeir gætu sent boltann aftur í hendur markmannsins síns. Einhverra hluta vegna höfðu Íslendingarnir ekkert frétt af þessari nýju reglu og því komust Valsarar aldeilis í bobba undir lok leiksins gegn Nantes þegar það átti að fara tefja Óbein aukaspyrna var dæmd en sem betur fer náðu þeir að bjarga marki..