Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða
Veislunni lokið PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Monday, 12 July 2010

Þá er mánaðarveislu af fótbolta lokið. Nýir heimsmeistarar krýndir og mjög fáir sem geta fært góð rök fyrir því að fyrsti HM titill Spánverja hafi ekki verið verðskuldaður. Lengi framan af móti voru menn á því að heimsmeistarakeppnin væri einhver sú slakasta og leiðinlegasta í manna minnum. Dómgæsla á mótinu var harðlega gagnrýnd og enn vöknuðu spurningar um hvort styðjast ætti við tækni til þess að koma í veg fyrir mistök dómara. Stórþjóðir ullu vonbrigðum og Mark Van Bommel gerði knattspyrnuheiminum greiða og lagði landsliðsskónna á hilluna. Sem betur fer ekki sem heimsmeistari. Á öllu jákvæðari nótum komu nokkur lið skemmtilega á óvart, maður kynntist nýjum og spennandi leikmönnum og mörkunum fjölgaði eftir því sem á mótið leið. 

Það er óhætt að segja að maður sé öllu fróðari að loknu HM. Ég vissi til dæmis ekki ...

  • af kolkrabbanum Páli sem væri besti giskari í heimi. Eftir að hann komst í fréttirnar spáði hann öllum leikjunum í mótinu rétt en nú vilja flestir Þjóðverjar gera kolkrabbakjöt úr Palla eftir tapið gegn Spánverjum
  • að hljóðfærið Vuvuzela væri til og að mögulegt væri að framkalla jafn hrikalegan hávaða og gerði heimsbyggðina gráhærða á fyrstu dögum mótsins
  • að menn væru ennþá að bera Kuyt vitlaust fram. Það er Kát en ekki Kaut
  • að sumir knattspyrnuáhugamenn héldu að Diego Forlan væri einhver djók karakter af því að hann komst ekki aftur í treyjuna sína í leik hjá Man Utd árið 2004. Það eru 6 ár síðan og jafnvel þótt menn fylgist minna með spænska boltanum en þeim enska átti frammistaða Forlan ekkert að koma mönnum svona mikið á óvart. Frammistaða landsliðsins kom vissulega á óvart en ekki frammistaða eins besta framherja heims
  • maður gæti flogið miðalaus til S-Afríku og reddað sér miðum í miðasölu á nánast hvaða leik sem maður vildi. Félagi minn frá Bandaríkjunum flaug suður miðalaus og fór á 7 leiki. Maður hefði getað gert góða veislu úr þessu móti. Of seint núna
  • að Frakkar væru svona leiðinlegir. Ég hélt alltaf að þeir væru (stereótýpur) leiðinlegir en ekki svona leiðinlegir
  • hversu fáir kunna í raun og veru reglur fótboltans sem varða rangstöðu og hendi
  • að Sammarinn yrði með HM þema Fótbolta Quiz á þriðjudaginn kl 20 á English Pub - skyldumæting
  • hversu erfitt og vanþakklátt dómarahlutverkið er. Margar rangar ákvarðanir dómara á mótinu en framganga leikmanna og þeirra sem vinna við að skila fótboltaleikjum heim í stofu gerir að verkum að ég skil ekki hvernig nokkur heilvita maður vill sinna þessu hlutverki
  • að Xavi og Iniesta víxluðust á númerum á treyjunum sínum þegar þeir spila með landsliðinu
  • að Spánverjar væru laaaangbesta landslið í heimi í fótbolta
Eitthvað fleira sem lesendur síðunnar hafa lært á nýliðnu móti?
Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
Kjartan   |2010-07-12 00:24:05
Að Afríkuþjóðir ættu að hætta að ráða útbrunna evrópska glaumgosa sem þjálfara og taka málin í eigin hendur....
Bjössi   |2010-07-12 08:13:54
Ég vissi ekki að keppnin færi þetta áfallalaust fram, ég hélt að Suður-Afríkumenn myndu bókað klúðra einhverju meiriháttar atriði. Kannski má nefna ástand vallanna og þetta vuvuzela bíó en heilt yfir virtist framkvæmdin vera fín.

Jú og svo vissi ég ekki að reglurnar væru strangari í íslensku 2. deildinni en á HM, t.d. hvað varðar liti á sokkum og hversu margir mega standa á bekknum.
Daði   |2010-07-12 09:31:14
- að þetta mót var klárlega það leiðinlegasta síðan 1990 og spurning um að skoða alvarlega eitthvað eða allt af eftirfarandi, 1) Myndavélar 2) Val dómara 3) Reglur um skiptingar 4) Yfirburðastöðu markvarðar 5) Gult fyrir síendurtekin brot (já Van Bommel og Busquets)

- að liðin sem spiluðu úrslitaleikinn þóttust stilla upp 4-2-3-1 en spiluðu í raun 4-6-0...

- að Hollendingar eru farnir að spila eins og Þjóðverjar og Þjóðverjar eins og Hollendingar.
Davíð   |2010-07-12 13:11:13
-Að lið eins og Holland sem getur spilað gullfallega knattspyrnu skyldi leika með jafn miklum fantaskap í úrslitaleiknum.

-Að ekki er sjálfgefið að kiwifugl í skógi verði að kiwifugli í hendi (Nýja Sjáland)

-Að óttinn við að tapa yfirstígur allt of oft möguleikann á gleðinni sem felst í að sigra.

Ég er ósammála Daða með að þetta sé leiðinlegasta keppnin frá svefmeðalinu 1990. Mér fannst þessi keppni á heildina litið heldur skemmtilegri en 2002 til dæmis.
RT   |2010-07-12 13:15:11
Mér fannst þetta frábær keppni, og dómgæslan reyndar í sumum leikjum alveg frábær en í öðrum hrikaleg. Sumar rangstöðurnar sem voru dæmdar voru svo tæpar en svo réttar að það var fáránlegt, en auðvitað stendur markið sem Lampard "skoraði" eftir.
Svo er þarf líka að fara greina þessa vítaspyrnudóma betur, Þýskaland t.d gegn Spáni hefði átt að fá víti fyrir mér í blálokin á fyrri hálfleik en útaf því að hann "rakst" bara í hann þá var það ekki víti ?
Og svo auðvitað, Liðsheild ofar öllu, Spánn vinnur og Nýja-Sjáland er eina landið sem fer taplaust í gegnum HM þetta árið.
Úlfur   |2010-07-12 13:16:34
Að það væri jákvætt að missa aðalstjörnuna í meiðsl rétt fyrir mót samanber Ballack og Essien. Bæði lið kópuðu vel án þeirra. Einnig að Maradona væri svona ógeðslega mikill töffari!
Ari   |2010-07-12 17:31:47
Já ef til vill litlaus keppni. Ég veit reyndar ekki meðaltalið á leik í mörkum en líklegast er þetta lægsti markafjöldi HM sögunnar. Þetta er verra en Ítalía 90. Sú keppni hefur alltaf verið talin sú versta(fyrir mér er hún reyndar sú besta því það var þá sem maður uppgötvaði fótbolta)

En já auðvitað voru stór móment þarna sem eiga alltaf eftir að lifa. Suares höndin, Green mistökin, Frakka skandallinn, Burstin hjá Þjóðverjum gegn Arg og Eng og fleira.

Það sem á samt kannski helst eftir að lifa í minningunni er þetta frábæra Spænska landslið. Þetta er aðeins í annað skiptið í sögunni sem sama þjóðin er handahafi EM og HM styttunnar. Síðan ég byrjaði að fylgjast með fótbolta myndi ég segja að Frakkland 98-00 sé besta landslið sem ég hef fylgst með en líklega eru Spánverjar nú komnir skör ofar. Það eina sem þeim vantaði var að ganga virkilega frá andstæðingunum eins og jú Frakkar gerðu í úrslitaleik HM 1998. Full mikið af 1-0 sigrum hjá þeim, en ég held samt að þeir hefðu getað boðið upp á ennþá meiri flugeldasýningu ef Torres hefði verið líkur sjálfum sér. Það verður allavega gaman að fylgjast með Spánverjum í komandi framtíð. Sérstaklega ef maður pælir í því, þá er enginn virkilega kominn á aldur í þessu liði. Þeir gætu í raun spilað á nákvæmlega sama mannskap á næstu tveimur stórmótum og þá þyrftu þeir kannski að fara skipta út Xavi og Puyol út vegna aldurs. Annars er engin í þessu liði fjörgamall. Breiddin hjá þeim er líka frábær....
Úlfur   |2010-07-12 18:16:30
Þýskaland, Holland og Spánn gætu öll hæglega verið með nokkuð óbreytt byrjunarlið á næsta HM, einungis örfáir í hverju liði sem verða komnir á aldur þá.

Spánn: Puyol, Capdevila, held að Xavi verði bara betri með árunum.
Holland: Bronckhorst, Van Bommel, Mathijsen.
Þýskaland: Klose

Man ekki eftir öðrum byrjunarliðsmönnum sem verða komnir langt inn á fertugsaldur.
GB   |2010-07-12 22:29:35
Ég ætla að gerast svo djarfur að lýsa mig ósammála síðasta punktinum. Spánverjar eru klárlega með besta liðið enda bæði EM og HM meistarar. Þeim tókst þó ekki að vinna nema 2 leiki þægilega að mínu mati og aðeins annan þeirra örugglega. Þetta voru leikirnir gegn Honduras og Þýskalandi (merkilegt nokk).

Þeir töpuðu gegn Sviss, Chile (sem voru að mér fannst ekki lakari aðilinn) hentu leiknum frá sér. Spánn marði leiðinlega Portúgali og átti í enn meiri erfiðleikum gegn skárri Paragvæum. Holland unnu þeir svo í framlengingu 1-0.

Sama hvernig mönnum finnst leikstíll Hollendinga (eða annarra), hvort mönnum finnist að einhver hefði átt að fjúka útaf os.frv, þá hefðu þessir leikir (sérstaklega úrslitaleikurinn) hæglega getað farið á hinn veginn Þeir gerðu það hinsvegar ekki og fyrir það fá Spánverjar kredit. Að tala um þetta eins og að það hafi í raun bara aldrei neitt annað komið til greina finnst mér samt bara rugl.

Á síðustu vikum hafa margir líkt Spænska liðinu við Barcelona. Liðin eiga jú margt sameiginlegt, meðal annars það að það virðist vera alveg bannað að gagnrýna þau. Verð ég enda örugglega skotinn niður fyrir að segja þetta. Spánn er ekki eins Barcelona liðið sem skoraði 100+ mörk í deild og rúllaði upp liðum í meistaradeild.

Spánn spilar uppá 1-0 vitandi það að komist þeir í þá stöðu þá geta þeir haldið boltanum nánast út leikinn. Á köflum geta þeir gjörsamlega svæft andstæðingana. Þetta virkar og því skiljanlegt að þeir noti sér það. Ég persónulega horfi samt frekar á fótbolta fyrir skot og mörk og vonandi dramatík en sendingar og 70% possession í reitabolta. Væri ekki alveg eins hægt að horfa á æfingar hjá þeim.

Þetta er orðið alltof langt og biðst ég afsökunar á því. Bottom line er að mínu mati: Spánverjar eru bestir en þeir eru ekki laaaang bestir, þeir eru ekki Barcelona og þeir eru ekkert sérstaklega skemmtilegir.

Þið megið skjóta mig núna
Einn sem er orðinn þreyttur á að heyra að Spánverjar geti gengið á vatni.
Ari   |2010-07-12 22:33:07
Reyndar þegar ég pæli í því þá voru Frakkar auðvitað handhafar beggja titlanna samtímis. Unnu HM 98 og svo EM 00. Skil því ekki af hverju fjölmiðlar hafa verið að tönnlast á því að Spánverjar séu þeir einu ásamt Vestur Þýska landsliðinu frá 8unda áratugnum sem hafa afrekað þessa tvennu

Maður bara er svo vanur að trúa því sem spekingarnir segja og ruglast því í ríminu. En reyndar var röðin öfug hjá Frökkum. Unnu HM fyrst og svo EM..... En samt engu minna afrek.
Anonymous   |2010-07-13 00:33:37
Hjörvar sagði það einmitt. Spánn er aðeins annað liðið í sögunni til að vinna EM og HM í þessari röð. Maður þarf stundum að opna eyrun.
Ari   |2010-07-12 22:50:30
Margt til í þessu hjá GB. Vissulega hefðu Spánverjar getað verið miklu beinskyttari en svo spyr maður sig ef Torres hefði verið með meðvitund á mótinu. Hefðu þá sóknirnar orðið meira direct og að sama skapi hefðu þeir unnið meira afgerandi sigra ?

Raunin er samt sú að eins mark sigrar eru mjög algengir á lokakeppni stórmóts. Sjáðu bara Brasilíu 1994 sem oft er talað um sem frábært sóknarlið. Þeir unnu eins marks 1-0 sigur í 16 liða úrslitum gegn USA, eins marks sigur í 8 liða úrslitum og 1-0 grís í undanúrslitum gegn Svíum. Svo tók við góðar 120 svefnmínútur í úrslitunum gegn Ítalíu.

Það sem er samt sérstakt við Spánverja er hversu vel þeir halda boltanum innan liðsins, en jú stundum þarf ekki alltaf að spila inn í markið eins og þeir virðast stundum vilja.

En já ef menn vilja eitthvað ræða um veikleika hjá Spánverjum. Þá er alveg hægt að færa rök fyrir því að Puyol sé veikur hlekkur. Jú ef hann mætir virkilega heimsklassa sóknarmanni þá á hann ekki séns. Hann er of hægur til þess. Eftirminnilegt hvernig Henry hreinlega gerði grín að honum á HM 06 og svo leit hann illa út gegn Robben í gær.
Yeboah   |2010-07-13 02:12:13
Það sem ég held alveg örugglega að þeir hafi sagt og er að ég best veit rétt þá eru Spánverjar önnur þjóðin á eftir , að sjálfsögðu , Þjóðverjum til að vinna HM sem ríkjandi Evrópumeistarar.
Tommi   |2010-07-14 00:19:04
Ósammála því að Puyol sé veikur hlekkur hjá Spáni. Þó að miðvörður sé ekki hraður þá getur hann vel átt ráðið við heimsklassa sóknarmenn. Henry 06 lét alla leikmenn líta illa út og Robben tekur alla varnarmenn á sprettinum. Þarf svo varla að minnast á fórnfýsi og stjórnun varnarinnar hjá honum.
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
< Prev   Next >
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color