|
Í kjölfar umræðu um tvíbura nokkra á Fótbolta Quiz Sammarans á Enska Barnum síðastliðið fimmtudagskvöld er ekki úr vegi að skoða aðeins athygslisverðustu tvíbura fótboltasögunnar. Þeir eru örugglega ófáir knattspyrnuþjálfararnir sem hafa í gegnum tíðina óskað sér þess að stjörnuleikmenn þeirra ættu sér tvíbura sem væru um leið gæddir sömu hæfileikum og tvíburabræður þeirra. Eins eru eflaustir margir tvíburar í knattspyrnuheiminum sem við vitum ekki um en þeir sem við þekkjum er vegna þess að bæði góði og vondi tvíburinn eru afreksmenn í fótbolta (eða systirin spilar netbolta og pabbinn heitir Neville Neville).
Þessi 6 pör skipa elítusætin í þessari "Sex í skemmtun" Sammarans.
Van de Kerkhof
Tvíburarnir Willy og Rene Van De Kerkhof eru líklega þeir minnst þekktu af lesendum síðunnar en síður en svo óþekkt nöfn í fótboltasögunni.Tvíburarnir hollensku voru nokkuð samstíga á sínum knattspyrnuferli eins og oft vill verða. Þeir spiluðu fyrstu árin með Twente í hollensku deildinni en fluttu sig svo á sama tíma yfir til stórliðs PSV Eindhoven þar sem hægri kantmaðurinn Willy spilaði út ferilinn en miðjumaðurinn Rene ákvað að róa á önnur mið 1983 og spilaði í Grikklandi og Hong Kong áður en hann spilaði eitt lokatímabil með PSV. Hollenska félagið var sigursælt á 8. áratugnum og hlóðust medalíurnar um hálsinn á bræðrunum. PSV vann UEFA bikarinn sem var líklega hápunktur ferils bræðranna hvað félagslið varðaði en Willy skoraði eitt mark í 3-0 sigri á Bastia í úrslitaleiknum. Bræðurnir voru mikilvægur hlekkur í gríðarsterku hollensku landsliði sem komst í úrslit HM 1974 í V-Þýskalandi undir stjórn Rinus Michels og svo aftur 4 árum síðar 1978 í Argentínu þegar Austurríkismaðurin Ernst Happel var við stjórnvölina. Rúsínan í pylsuendanum var svo auðvitað þegar Pele valdi þá bræður á lista sinn yfir topp 100 lifandi knattspyrnumenn sem innihélt eins og frægt er 125 leikmenn þ.á.m. Abedi Pele og El Hadji Diouf.
Holdsworth
David og Dean Holdsworth kannast líklega aðeins fleiri við. Þeir hófu ferilinn saman hjá Watford þar sem Graham Taylor sjálfur var við stjórnvölina og David James að stíga sín fyrstu skref sem markvörður meðal fullorðinna. Í dag eru flestir sammála um að hæfileikar sóknarmannsins Dean hafi verið örlítið meiri en varnarmannsins David en það þótti ekki svo ljóst á þessum tíma. Dean gekk til liðs við Íslendingaliðið, ef svo má kalla, Brentford og þar vakti hann athygli. Mark í öðrum hverjum leik á 3 ára tímabili vakti athygli Joe Kinnear hjá Wimbledon og gekk Dean til liðs við Crazy Gang '92. Hans bestu ár voru í framlínu 'The Dons' við hlið John Fashanu og svo nokkrum árum síðar í búningi Bolton þar sem hann spilaði m.a. við hlið Eiðs Smára og Guðna Bergs. Eftir Bolton spilaði Dean með 10 liðum og lauk ferlinum sem spilandi þjálfari Redbridge. Harðjaxlinn Holdsworth komst eins og fleiri úr Crazy Gang í kast við lögin. Í annað skiptið fyrir heimilisofbeldi en í hitt fyrir að slá sér upp með 17 ára fyrirsætu. Í seinni tíð hefur Dean svo komið fram í raunveruleikasjónvarpsþáttunum Deadline og Cirque de Celebrite. Ferill David er öllu fábreyttari en hann spilaði til '96 með Watford og svo um 100 leiki með Sheffield Utd og Birmingham.
Í dag þjálfar Dean Newport County en David Mansfield Town.
De Boer
Aftur höldum við til Hollands sem eru samkvæmt þessum lista betri en flestir aðrir að framleiða tvíbura sem eru góðir í fótbolta. Í þetta skiptið er annar örvfættur en hinn réttfættur. Það er eiginlega alveg magnað hversu samstíga bræðurnir hafa verið á ferlinum og það ætlar enginn að segja mér að þeim sé ekki vel til vina. Varnarmaðurinn Frank spilaði með Ajax í 10 ár óslitiið á meðan hinn framsækni miðjumaður Ronald sleit sitt Ajax tímabil í sundur og spilaði tvö tímabil með Twente áður en hann sneri aftur til Ajax 1993, ákvörðun sem hann sér líklega ekki eftir. Ajax var á þessum tíma eitthvert mest spennandi félagslið í Evrópu enda fór félagið undir stjórn Van Gaal í úrslit Meistaradeildar '95 og '96 þó sigur hafi aðeins náðst í fyrri tilrauninni. Van Gaal fékk svo tvíburana til liðs við Barcelona '98 þar sem Frank spilaði lykilhlutverk með liðinu í 5 ár en ekki gekk jafn vel hjá Ronald. Hann ákvað árið 2000 að flytja sig í aðra hollenska nýlendu, Glasgow Rangers í Skotlandi, undir stjórn Dick Advocaat. Ronald var tekinn í guðatölu hjá stuðningsmönnum Rangers og árið 2003 bættist Frank í hópinn og þeir spiluðu eitt tímabil saman í Skotlandi. Þarna var landsliðstímabili De Boer bræðranna að ljúka og tóku þeir næstu vél til austurlanda og spiluðu eitt ár saman í Quatar með Al-Rayyan. Frank lagði skónna á hilluna 2005 en Ronald spilaði í 3 ár til viðbótar með Al Shamal þar eystra.
Þeir bræður spiluðu á fjölda stórmóta fyrir hollenska landsliðið og skoruðu hvor um sig 13 mörk. En eins og allir hollenskir landsliðsmenn fyrir utan þá sem spiluðu í V-Þýskalandi 1988 náðist aldrei sá árangur með landsliðinu sem vonast var eftir. Frank de Boer var svo leikjahæsti maður landsliðsins frá upphafi í skamman tíma þangað til Van Der Saar sló metið. Í dag er Frank aðstoðarþjálfari hollenska landsliðsins.
Allt í lagi að láta fylgja með eitt af glæsilegri mörkum Frank sem skoraði ófá með langskotum úr aukaspyrnum.
Gunnlaugssynir
Það þarf ekki að taka lengri ferjuferð en 45 mínútur með Akraborginni til þess að heimsækja Arnar og Bjarka sem reyndar búa þó líkast til í einhverjum eðalíbúðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þeir bræður slógu svo sannarlega í gegn sumarið 1992 í spútnikliði Skagamanna sem kom upp úr 1. deildinni og rúlluðu því sem næst upp úrvalsdeildinni. Þeir bræður fóru að loknu tímabili á pakkatilboði til Feyenoord í Hollandi þar sem þeir náðu ekki að festa sig í sessi. Þeir færðu sig um set og spiluðu tímabil með Nurnberg í þýsku 1. deildinni og stóðu sig nokkuð vel. Það væri efni í BA ritgerð að telja upp öll þau lið sem notið hafa þjónustu þeirra bræðra en þó vissara að minnast á góðan tíma Arnars með ensku félögunum Leicester City og sérstaklega Bolton Wanderers. Í seinni tíð hafa þeir félagar spilað hlið við hlið hjá KR, FH, Val auk þess sem þeir sneru aftur á Skagann eins og frægt er orðið. Báðir spiluðu um 30 landsleiki og kann að koma mörgum á óvart að Bjarki skoraði fleiri mörk fyrir landsliðið eða sjö gegn þremur mörkum Bjarka. Líklegt þykir að Arnar komi eitthvað við sögu hjá Haukum næsta sumar en annars komast þeir bræður reglulega í fréttirnar í tengslum við fasteignir, golf eða póker.
Altintop
Það er nokkuð ljóst að Altintop bræðurnir væru þekktari hér á landi væri þýski boltinn enn í sýningu á Rúv. Þeir hófu atvinnumannaferilinn með smáliði Wattenscheid 09 áður en miðjumaðurinn Hamit var keyptur til Schalke og sóknarmaðurinn Halil til Kaiserslautern árið 2003. Hamit, sem er jafnvígur á hægri og vinstri fót, var lykilmaður í liði Schalke til 2007 þegar hann færði sig yfir til Bayern Munchen þar sem hann spilar í dag. Bróðir hans Halil spilaði eitt tímabil við hlið hans hjá Schalke en rifti nýlega samningi sínum við félagið og spilar nú með Eintracht Frankfurt. Halil varð fyrir miklum vonbrigðum þegar hann var skilinn eftir heima er Tyrkir héldu á EM 2008. Hamit spilaði hins vegar lykilhlutverk í liði Tyrkja sem komst í undanúrslit keppninnar þar sem þeir mættu Þjóðverjum. Bræðurnir eru einmitt fæddir í Þýskalandi og því stór stund fyrir Hamit sem að lék allan leikinn í 3-2 tapi. Hann var valinn í 23 manna úrvalslið mótsins að keppninni lokinni.
Da Silva
Heitustu tvíburar dagsins í dag eru líklega bakverðirnir Rafael og Fabio sem eru á mála hjá Manchester United. Eins og flestir ungir og bráðefnilegir leikmenn í fátækari heimsálfum voru þeir "uppgötvaðir" af útsendurum margra stórliða Evrópu en völdu að lokum að ganga til liðs við rauðu djöflanna. Rafael var fyrri til að vekja athygli stuðningsmanna United þegar hann skoraði glæsilegt mark og minnkaði muninn í 2-1 í viðbótartíma gegn Arsenal. Hann hefur spilað í stöðu hægri bakvarðar og þykir harður í horn að taka þrátt fyrir sakleysilegt útlitið. Sömu sögu er að segja af Fabio sem hefur spilað töluvert minna en Rafael m.a. vegna meiðsla. Fabio hefur þrátt fyrir að vera réttfættur leyst stöðu vinstri bakvarðar hjá félaginu en þar verður samkeppnin ekki mikið erfiðari með Patrice Evra í fantaformi. Þeim hefur verið líkt við Neville bræðurna sem, þrátt fyrir að vera ekki tvíburar (reyndar er Phil tvíburi), leystu sitthvora bakvarðastöðuna af hendi í lengri tíma hjá þeim rauðklæddu.
Eins og oft vill verða með eineggja tvíbura er erfitt að þekkja þessa myndarlegu brasilísku stráka í sundur en kemur þá giftingarhringur Fabio til góða en aðeins 18 ára kvæntist hann hinni 17 ára Barböru sem býr með honum í Manchester. Þeir hafa báðir spilað fyrir u 17 landslið Brasilíu.
Að lokum eru hér svipmyndir úr fyrsta leik tvíburanna sem var æfingaleikur gegn Peterborough sumarið 2008. Aðeins fyrir hörðustu Utd menn.
Dettur ykkur í hug fleiri spennandi tvíburar í knattspyrnuheiminum?
|