Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða arrow Greinasafn arrow Getraunir arrow Laugardagsgetraun 4. júlí 2009
Laugardagsgetraun 4. júlí 2009 PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Atli   
Friday, 03 July 2009
dorigoSigurvegarar síðustu Laugardagsgetraunar voru þeir Friðrik og Hafsteinn með fullt hús stiga, 15 af 15 mögulegum. Sammarinn fékk gestaspyrla til liðs við sig þessa helgina - þá Sigurlaug Ingólfsson og Guðbrand Benediktsson - og fá þeir bestu þakkir fyrir. Við hvetjum alla til að reyna við spurningapakkann og undirbúa sig þannig fyrir Pub Quiz Sammarans #2 sem verður haldið á miðvikudaginn (8. júlí) kl 20 á Enska Barnum.

Við minnum á að öllum er frjálst að svara út helgina og skiptir engu hvort aðrir eru búnir að svara spurningum. Sammarinn treystir sem fyrr á heiðarleika þátttakenda í því að sleppa því að skoða svör annarra eða google þar til þeir hafa skilað sínu giski.

Góða skemmtun og gangi ykkur vel!

1.  Það gerðist nú á dögunum að íslenskur leikmaður varð sá fyrsti í sögunni til að skora 200 mörk á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla. Leikmaður þessi leikur með íslensku 3. deildarliði, en lið hans spilaði í efstu deild karla í fyrsta og eina sinn árið 1997. Umræddur leikmaður var þá meðal leikmanna liðsins. Hvaða leikmaður er fyrsti leikmaðurinn til að skora 200 mörk á Íslandsmótinu? 

2.  Árið 1988 léku Liverpool og Wimbeldon til úrslita í ensku bikarkeppninni. Úrslit leiksins urðu söguleg, því Wimbeldon lagði stórveldið Liverpool að velli 1-0. Leikmenn Liverpool fengu vítaspyrnu sem fór forgörðum, þegar Dave Beasant markvörður varði spyrnu John Aldridge. Markaskorari Wimbeldon liðsins var miðjujaxl sem var þekktur fyrir að vera fastur fyrir á vellinum; raunar líkt og fleiri leikmenn liðsins á þeim árum. Þegar knattspyrnuferlinum lauk gerðist hann þjálfari. Hann hefur á ferli sínum sem þjálfari m.a. þjálfað evrópsk landslið og enskt úrvalsdeildarlið. Ferill hans hjá úrvalsdeildarliðinu varð heldur endaslepptur, en hann sagði upp um mitt mót 2007. Hver skoraði sigurmark Wimbeldon í úrslitaleik ensku bikarkeppninarinnar 1988? 

3.  Á undanförnum árum hafa ensk knattspyrnulið flutt sig um set og mörg kunnuleg nöfn enskra knattspyrnuvalla hafa horfið. Hvaða lið spiluðu heimaleiki sína á eftirfarandi völlum a) Ayresome Park, b) Roker Park, c) Burnden Park, d) Highbury? 

4.  Brian Clough er goðsögn í sögu ensku knattspyrnunar. Hann gerði bæði Derby County og Nottingham Forest að enskum meisturum á löngum og farsælum ferli. En hvaða stórlið þjálfaði Clough í aðeins 44 daga áður en honum var sagt upp störfum? 

5.  Í einum þekktasta knattspyrnuleik Íslandssögunnar, sem háður var gegn Dönum árið 1967 var lokastaðan skáldleg: 14-2 fyrir Dönum. En hver var hálfleiksstaðan í leiknum fræga? a) 0-0, b) 0-1, c) 6-0 eða d) 14-2? 

6.  Hver var þjálfari enska landsliðsins þegar England varð heimsmeistari á heimavelli 1966? 

7.  Áhugamenn um þýska knattspyrnu eru iðulega söngelskir. Á leikjum Bayern Munchen má heyra andstæðinga liðsins syngja: „ zieht den Bayern die Lederhose aus!” (við lag Bítlanna Yellow Submarine) eða „ klæðið Bæjarara brókunum úr “. En hér er spurt: Andstæðingar hvaða þýska liðs syngja: „Was ist grün und stinkt nach Fisch“? 

8. Benito Mussolini var mikill áhugamaður um knattspyrnu. Með hvaða ítalska stórliði hélt Mussolini? En þess má geta að fasistastimpilinn hefur viljað loða við ákveðinn hóp stuðningsmanna þessa liðs. 

9. Spurt er um ártal. Breiðablik og ÍBV féllu úr efstu deild, en Víðir Garði hélt sæti sínu. Guðmundur Torfason var markahæstur í efstu deild og Gauti Laxdal var valinn efnilegastur. Völsungur vann næst efstu deild og Leiftur Ólafsfirði vann þriðju efstu deild. Valur varð Íslandsmeistari kvenna. Pétur Pétursson tryggði Skagamönnum sigur í úrslitaleik bikarkeppnarinnar. Sigfried Held var ráðinn landsliðsþjálfari Íslands og Ísland náði stigi gegn Sovétríkjunum á heimavelli með marki Arnórs Guðjohnsens. 

10. Willum Þór Þórsson lét af störfum sem þjálfari Vals í vikunni. Hvaða þrjú meistaraflokks lið, auk Vals, hefur Willum þjálfað á ferlinum? 

11. Hvaða nýjung í knattspyrnulögunum tók breski dómarinn Ken Aston upp árið 1966? 

12. John Jensen voru trúlegast umdeildustu kaup framkvæmdastjóra Arsenal George Graham á sínum tíma. Jensen var danskur landsliðsmaður og meðlimur í Evrópumeistaraliði Dana 1992. Daninn spilaði 132 leiki fyrir Arsenal en náði aðeins að skora eitt mark. Enn má sjá stuðningsmenn Arsenal í bol merktan: I saw John Jensen score. En á hvaða danska bjórframleiðanda hafði John Jensen mest dálæti á? 

13. Árangur Stjörnunnar hefur vakið athygli það sem af er móts. Nokkur ár eru síðan Stjarnan spilaði síðast í efstu deild, hvaða ár var það? 

14. Alex Ferguson hefur oftast orðið enskur meistari allra knattspyrnustjóra á Englandi, alls 11 sinnum. Alex er, eins og flestir vita Skoti að uppruna. Hver var síðasti Englendingurinn til að stýra ensku liði til sigurs í efstu deild á Englandi og með hvaða liði? 

15. Knattspyrnufélagið Þróttur er sofandi risi í íslenskri knattspyrnu. Félagið fagnar merkum tímamótum í ágúst á þessu ári. Hvaða afmæli fagnar Þróttur á árinu 2009?

Svörin birtast á mánudagsmorguninn...
Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
Tumi   |2009-07-04 01:25:52
Toppspurningar Silli og Gudbrandur. Gott thema i gangi lika

1. Valdimar K. Sigurdsson
2. Lawrie Sanches
3. a) Middlesboro, b) Sunderland c) Bolton d) Arsenal
4. Leeds
5. 6-0
6. Sir Alf Ramsey
7. Werder Bremen
8. Lazio
9. 1988
10. Haukar, Thrott og KR
11. Spjold?
12. John "Faxe" Jensen
13. 2001
14. Howard Wilkinson, Leeds, 1991
15. 60 ara?
Bjössi   |2009-07-04 10:18:01
1. Valdimar K. Sigurðsson
2.
3. D. Arsenal
4. Leeds
5. C
6.
7. Bókað andstæðingar hafnarborgarinnar Bremerhaven. Werder Bremen
8. Lazio
9. 1990?
10. Þrótt, KR og Hauka
11. Tvö gul gerðu rautt?
12. Er ekki að fatta þetta en hann hlustar mikið á The Cure.
13. 2001?
14.
15. 50 ára afmæli
Toricelli   |2009-07-04 11:02:49
1. Valdimar K Sigurðsson

2. Lawrie Sanchez

3. a) Hull b) Sunderland c) Bolton d) Arsenal

4. Leeds

5. 6-0

6. Sir Alf Ramsey

7. Werden Bremen

8. Lazip

9. 1986

10. KR, UBK,Þrótt, Hauka

11. Gul spjöld

12. Faxe

13. 2000

14. Howard Wilkinson Leeds

15. 50 ára
Oddur   |2009-07-04 16:33:12
1. Valdimar K. Sigurðsson
2. Lawrie Sanchez
3. A)Middlesbrough Sunderland C)Bolton D)Arsenal
4. Leeds
5. 6-0
6. Sir Alf Ramsey
7. Werden Bremen
8. Lazio
9. 1985 (Mínir menn spiluðu í efstu deild 1986 og 87)
10. Haukar, Þróttur, Stórveldið
11. Gult og Rautt spjald (Var að kynna mér þennann mann um daginn þegar ég var að leita af einmitt hvenar spjöldin komu til sögunar og komst að þessi maður er nánast guðföður dómarastéttarinar)
12. Það hlýtur að vera Faxe öl
13. 2000
14. Leeds 1991 og Howard Wilkins
15. Þróttur er sextugur!
Oddur   |2009-07-04 16:33:57
Gaman að sjá ef maður gerir B ) án bils þá kemur
Nonni   |2009-07-04 22:11:28
1.Valdimar K Sigurðsson
2.?
3.?
4.Man utd
5.c
6.Sir alf ramsey
7.Köln
8.Lazio
9.1989
10.Þrótt, Haukar, KR
11.Hagnaðarreglu
12.Carlsberg
13.2005
14.Geroge Graham Arsenal
15.90 ára.
Smonní  - Herra   |2009-07-04 22:29:32
1 Valdimar K. Sigurðsson
2
3 a)Mboro b) Sunderland c) d)Arsenal
4 Leeds
5 c
6 Sir Alf Ramsey
7 Gladbach
8 Lazio
9 1988
10 KR, Þrótt og Hauka
11 Flautuna?
12 Tuborg
13 2004
14 Howard Wilkinson, Leeds
15 50 ára
Elías   |2009-07-05 14:33:17
1.Skallagrímsmaðurinn þarna, Valdimar. Segjum Gunnarsson.

2.Lawrie Sanchez.

3.a)Middlesbrough, b)Sunderland c)Bolton d)Arsenal.

4.Leeds

5.6-0

6.Alf Ramsay

7.Werder Bremen, enda eru þeir ömurlegir.

8.SS. Lazio

9.1986.

10.KR, Þrótt og Hauka.

11.Gul og rauð spjöld hljómar mjög sennilegt.

12.Bara Carlsberg eða e-ð.

13.2000, Áfram Stjarnan!

14.Howard Wilkinson, Leeds.

15.60 ára afmæli.
Ingvi Þór   |2009-07-05 20:31:54
1. Valdimar K. Sigurðsson
2. Lawrie Sanchez
3. .
4. Leeds Utd.
5. C
6. Sir Alf Ramsey
7. Stuttgart
8. Lazio
9. 1986
10. Þróttur, Haukar, KR
11. Notast fyrstur manna við spjöld
12. Faxe
13. 2000
14. Howard Wilkinson, Leeds Utd.
15. 60 ára
Hjörvar   |2009-07-05 23:58:42
1. Valdimar K. Sigurðsson.
2. Lavrie Sanchez.
3. Úfff.
4. Leeds.
5. 6-0.
6. Sir Alf Ramsay.
7. Werder Bremen.
8. Lazio.
9. 1985.
10. Haukar, Þróttur og KR.
11. Gul og rauð spjöld.
12. Hlýtur að vera Faxe.
13. 2000.
14. Howard Wilkinsson og Leeds.
15. Þróttur er 60 ára.
Atli  - Réttu svörin   |2009-07-06 09:02:39
Ég fæ ekki betur séð en að Oddur hafi unnið þetta með 14 rétta (að því gefnu að með "Stórveldinu" eigi hann við kr).
Annars var þetta fínt stigaskor hjá mönnum og þökkum við spurningahöfunda kærlega fyrir.

Þetta eru réttu svörin:
1. Valdimar K. Sigurðsson
2. Lawrie Sanchez
3. a) Middlesbrough, b) Sunderland, c) Bolton og d) Arsenal
4. Leeds
5. c) 6-0
6. Alf Ramsey
7. Werder Bremen
8. Lazio
9. 1986
10. Þróttur, Haukar og KR
11. Gul og rauð spjöld
12. Faxe
13. 2000
14. Howard Wilkinson og Leeds United
15. 60 ára
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
< Prev   Next >
 

Add to Google Reader or Homepage
Subscribe in Bloglines
Subscribe in NewsGator Online
Add to netvibes
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color