|
Höfundur: Atli
|
|
Wednesday, 01 July 2009 |
Misjafnt er hvað fótboltamenn gera sér til dundurs eftir að skónum hefur verið komið fyrir á hillunni. Einhverjir fara í skóla eða út á “hefðbundinn vinnumarkað” og aðrir fara út í þjálfun eða hefja störf í sjónvarpi. Markmaðurinn geðþekki, Oliver Kahn, var nýlega í viðræðum við Schalke um að taka við starfi framkvæmdastjóra klúbbsins, en ekkert varð úr því.Þess í stað hefur Kahn nú hafið störf sem aðalmaðurinn í nýjum raunveruleikaþætti – nokkurs konar Idol – þar sem kóngurinn leitar að efnilegasta markmanninum. Þessi snilld er þó ekki gerð fyrir þýskt sjónvarp, heldur kínverska ríkissjónvarpið.
Fyrsti þátturinn af tíu var sýndur á Heilongjiang TV fyrr í mánuðinum, en þættirnir verða á dagskrá á fimmtudagskvöldum langt fram eftir hausti. Takmarkið: Að finna efnilegasta markmann Kínverja. “King Kahn” er í hlutverki dómara í þáttunum, I Never Give up!, þar sem karlkyns og kvenkyns markmenn á aldrinum 17 til 24 ára keppa um hylli þessa nýja Simon Cowell.
Hinn fertugi Kahn mun í síðasta þættinum velja þann efnilegasta úr hópnum og fær sá stöðu í afreksmannaakademíu þýska knattspyrnusambandsins, sem gefur viðkomandi færi á að hefja atvinnumannaferil sinn fyrir alvöru. Fótbolti er vinsæl íþrótt í Kína þó að þeir séu einungis í kringum 100. sæti á FIFA-listanum.
Oliver Kahn er þótt ótrúlegt megi virðast einn vinsælasti fótboltamaðurinn í Asíu og því er líklegt að þessi þáttur muni ná talsverðu áhorfi. Ástæða þessara vinsælda Kahn er frábær spilamennska hans á HM í Japan og Suður-Kóreu 2002.
Kahn segir að með þættinum sé verið að leita að einstaklingi með sterkan persónuleika og að miklu máli skipti hvernig keppendur bera sig eftir tap og hvaða lærdóm þeir draga. Hann leggur áherslu á að vera uppbyggilegur og að þetta snúist ekki um að brjóta fólk niður eins og oft vill verða í raunveruleikaþáttum. “We don’t want to do an empty and meaningless, mindless casting show. And I don’t want to be the one who ‘talks big’ and disses or offends the young candidates when they don’t succeed.”
Nú er bara spurning um að fá RÚV eða Skjá Einn til að kaupa þessa þætti til sýninga. Miðað við introið hér að ofan hlýtur þetta að vera hrein gargandi snilld!
Ljúkum þessu svo á laginu um Olli 'Ginger' Kahn!
|