Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

  • Fótboltaþátturinn 30. nóvember 2009
    Björn, Kjartan og Tumi fóru yfir stórleiki helgarinnar og settu Íslandsmet í aulabröndurm úr fótboltaheiminum. Sögur af Jimmy Bullard og Stefáni Loga.
You are here: Forsíða arrow Greinasafn arrow Tilkynningar arrow Pub Quiz Sammarans #2
Pub Quiz Sammarans #2 PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Wednesday, 08 July 2009

pubquiz.jpgPub Quiz Sammarans fer fram í annað sinn á Enska barnum í Austurstræti í kvöld og hefst stundvíslega kl. 20. Mikil stemning og góð mæting var á fyrsta Pub Quiz Sammarans sem fram fór fyrir mánuði, en stefnt er að því að halda þessi kvöld á um mánaðar fresti. Vinningarnir í þetta skiptið eru ekki í lakari kantinum – út að borða og kassar af bjór – þó að aðalatriðið sé að sjálfsögðu að hitta fólk og hafa gaman. Þá fá allir þeir sem svara “bjórspurningunni” rétt einn kaldan á barnum.
Formið er hefðbundið þar sem tveir og tveir eru saman í liði og verða stakir menn einfaldlega paraðir saman á staðnum. Spurningarnar eru 30 talsins og tengjast allar fótbolta á einn eða annan hátt og mjög líklegt verður að teljast að spurt verði einu sinni úr uppáhaldsmynd Sammarans Mike Bassett - England Manager. Þátttaka er ókeypis og þarf ekki að skrá sig sérstaklega til leiks – bara mæta á svæðið.

Áhugasamir geta nálgast spurningar og svör úr síðasta pub quiz-i hér
Frekari upplýsingar fást á netfanginu This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
Friðrik   |2009-07-08 08:52:02
Búinn að horfa á Mike Bassett myndina þ.a. ég ætti að vera tilbúinn fyrir allar mögulegar spurningar!!!
Eggert   |2009-07-08 12:40:03
Sælir drengir - er búinn að vera að reyna að skipa vakt en ekki tekist... það er því miður beiler á quiz #2 hjá mér... andskotinn!!!
Andrés   |2009-07-08 13:14:35
Reddið þið pappír og pennum?
Tumi   |2009-07-08 14:05:55
Já, það verður séð um allt svoleiðis. Bara að mæta.
RT   |2009-07-08 14:18:04
Mig vantar liðsfélaga, finn engan sem nennir. Vonast bara eftir einhverjum vitrum sem vantar liðsmann á staðnum
Tumi   |2009-07-08 14:25:08
Það verða eflaust fleiri "makalausir" á svæðinu þ.a. ég myndi ekki hafa neinar áhyggjur af því. Mönnum leyfist líka að vera stakir.
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
< Prev   Next >
 

Add to Google Reader or Homepage
Subscribe in Bloglines
Subscribe in NewsGator Online
Add to netvibes
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color