|
Greinasafn
Enski boltinn
Valið á Jimmy Bullard | Valið á Jimmy Bullard |
|
|
|
| Höfundur: Bjössi | |||||||
| Monday, 01 September 2008 | |||||||
|
Að mínu mati er þetta gott val hjá Capello. Það sem hefur oft og tíðum takmarkað getu Englendinga á vellinum er að stjörnurnar á miðjunni, Gerrard og Lampard, hafa hægt á spilinu og virst einbeita sér of mikið að því að spila of góðan fótbolta, ef það meikar eitthvað sens að halda slíku fram. Ég á í raun við að við sáum breytinguna sem Gareth Barry kom með inn í liðið. Þar var kominn leikmaður sem kom með auka kraft inn í leik liðsins, en þannig hefur Englandi einmitt gengið best á síðustu árum; þegar menn eru dýrvitlausir og spila fljótan og fastan fótbolta, rétt eins og í deildinni. Jimmy Bullard er akkúrat þannig leikmaður. Hann er gríðarlega duglegur, pressar menn framarlega á vellinum og virðist leika best þegar á brattann er að sækja. Hann er öðruvísi leikmaður en Michael Johnson, ekki endilega betri, en ég held að það hafi verið réttara að velja hann þar sem Lampard er í hópnum og þeir Johnson hafa verið í svipuðu hlutverki hjá sínum liðum. Hins vegar lýsi ég enn eftir Kevin Davies í enska landsliðið en verð sennilega að kyngja því að hans tækifæri er liðið.
Powered by !JoomlaComment 3.26
3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved." |
|||||||
| < Prev | Next > |
|---|








