|
Greinasafn
Íslenski boltinn
Slök frammistaða gegn Azerum | Slök frammistaða gegn Azerum |
|
|
|
| Höfundur: Bjössi | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Wednesday, 20 August 2008 | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Íslenska liðið lítur alls ekki nógu vel út fyrir leikinn við Norðmenn í undankeppni heimsmeistaramótsins. Hreyfingar, hlaup og færslur á liðinu voru nær engar sóknarlega og leikur liðsins allt of fyrirsjáanlegur. Vörnin hélt reyndar ágætlega, en nokkrum sinnum skall hurð nærri hælum og það gegn mjög ungu Azersku liði sem er í 133 sæti á heimslistanum. Vissulega var ekki verið að spila á sterkasta liði. Aron og Elmar spiluðu ekkert, Emil kom inn á í síðari hálfleik og Eggert var ekki í hóp. Hins vegar hlýtur það að valda mönnum miklum áhyggjum hve hrikalega lélegan fótbolta liðið sýndi. Jóhann Berg má vera sáttur við sína innkomu í liðið þrátt fyrir að hafa lítið fengið að taka þátt í spilinu. Hermann og Grétar voru að standa sig vel, Stefán var allt of passívur og studdi Pálma og Eið ekki nærri nógu vel og liðu þeir töluvert fyrir það, þó Eiður hafi verið góður þegar á leið leikinn. Bjarni Ólafur sýndi Jóhanni og síðar Emil (sem var arfaslakur) ekki nógu góðan stuðning vinstra megin og Gunnar Heiðar fékk úr litlu að moða frammi. Í viðtali við Sammarann eftir leik sagðist Stefán Logi hundfúll út í sjálfan sig fyrir að hafa ekki varið aukaspyrnu Fabio Luis Ramín "´...ég átti bara að grípa þennan bolta". Hann taldi frammistöðu sína ekki nógu góða fyrir landsliðið og að hann þyrfti að brillera með KR það sem eftir lifir tímabils til að verða valinn aftur. Grétar Rafn misskildi spurningu Sammarans þegar hann var spurður hvort hann hafi verið að reyna sendingu með skallamarkinu. "það mikilvægasta var að fá þrjú stig" sagði hann, og var þá væntanlega að vísa til leiksins við Stoke um daginn. Hann sagði að liðið fengi nú ekki beint "ágætt" í einkunn fyrir liðið en lagði þó áherslu á að mikilvægt væri að fá þessa æfingaleiki til að stilla saman strengi og hittast. Merkilegt þótti mér þó að þegar ég spurði hann hvort það væri ekki stuð að spila í ensku úrvalsdeildinni sagði hann að við værum væntanlega sumir að gera svolítið mikið úr þessu, fyrir honum væri þetta bara vinna. Immitt. Ólafur Jóhannesson svaraði einnig spurningum Sammarans á fréttamannafundi eftir leikinn. Hann sagði ástæðu þess að Aron fengi ekki að spila vera þá að hann vissi hvar hann hefði hann og að hann væri svo gott sem með öruggt byrjunarliðssæti. Honum fannst stemningin ágæt fyrir leik og kvaðst ekki sammála okkur með að leikmenn hafi verið daufir í leiknum, þó þeir hafi ekki verið nógu góðir í fyrri hálfleik. Aðspurður um símtalið sem Veigar óskaði eftir brást hann illa við og sagði að bara fjölmiðlum dytti svona vitleysa í hug. Ef hann ætlaði að hringja í alla þá sem yrðu ekki valdir þyrfti hann að hafa 20 manns í vinnu. Eiður Smári hafi verið valinn fram yfir Veigar í þá stöðu. Af þessu má draga þá ályktun að Veigar sé ekkert að fara að spila undir Ólafi, enda ólíklegt að hann skilji Eið eftir utan hóps.
Powered by !JoomlaComment 3.26
3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved." |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| < Prev | Next > |
|---|








