|
Greinasafn
Enski boltinn
Vandamál Tottenham | Vandamál Tottenham |
|
|
|
| Höfundur: Bjössi | |||||||
| Wednesday, 27 August 2008 | |||||||
|
Þrátt fyrir að góðir leikmenn hafi gengið til liðs við þá og liðið virki nokkuð sterkt á pappírunum er töluvert um vandamál sem mig langar aðeins að fara yfir. Fyrir það fyrsta á liðið aðeins einn nothæfan sóknarmann, Darren Bent. Defoe og Keane eru farnir og Berbatov "not in the right state of mind" eins og Poyet segir. Það er ljóst að slíkt gengur engan vegin. Nú er verið að tala um að Pavlyuchenko sé á leiðinni og þá vantar kannski einn til viðbótar og þetta er orðið ágætt. Miðjan er hins vegar meiriháttar vandamál. Eins og liðið stillti upp í síðasta leik voru Lennon og Bale á köntunum, Bentley bak við striker og Modric og Jenas á miðjunni. Hvað er rangt við þessa mynd? Hver á að verjast? Bentley er að spila út úr stöðu þar sem Lennon er að festa sig hægra megin. Modric ætti annars að vera bak við strikerinn með tvo sem geta varist bak við sig. Huddlestone kom inn á í síðari hálfleik gegn Sunderland og lagaði mikið en Ramos getur bara ekki leyft sér að skilja Jenas einan eftir í varnarskyldu á miðjunni. Sennilega væri best að henda Bale niður í bakvörðinn þar sem hann á heima, senda Bentley á vinstri kantinn, Modric bak við Bent og Huddlestone (eða Zokora) á miðjuna með Jenas. Þangað til óttast ég að liðið muni verða undir í baráttunni á miðjunni.
Powered by !JoomlaComment 3.26
3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved." |
|||||||
| < Prev | Next > |
|---|








