Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

  • Fótboltaþátturinn - 13. júlí 2009
    Viðtal við Auðun Helgason Framara og Stefán Karl Kristjánsson, sem skrifaði grein um mikilvægi uppaldra leikmanna hjá íslenskum félögum. Farið yfir helstu félagsskipti og fréttir úr evrópuboltanum
You are here: Forsíða arrow Greinasafn arrow Enski boltinn arrow Staða Rafa Benitez
Staða Rafa Benitez PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Bjössi   
Sunday, 24 August 2008

 Rafa Benitez má með sanni kalla umdeildan þjálfara. Margir hafa haft sínar efasemdir um hann allt frá komu hans til félagsins 2004 en hann virðist þó njóta almenns stuðnings áhangenda liðsins.

John Modson, lýsandinn frægi, varpaði fram þeirri spurningu á BBC um daginn hvort metnaður Liverpool væri annar og minni en hann var áður en Benitez tók við. Það er svo langt síðan Liverpool virtist eiga alvöru möguleika á enskum titli að Gary Lineker sagði í djóki fyrir heimaleikinn gegn Middlesbrough um helgina að leikmenn Boro, með 22 ára meðalaldur myndu kannski ekki eftir því að "Liverpool used to be really good".

Gerard Houllier var látinn fara þar sem hann hafði ekki náð að skila enskum deildartitli í hús á fimm árum. Benitez er nú að hefja sitt fimmta tímabil og hefur í raun aldrei verið líklegur til að vinna deildina. Í ár heyrist ekki í nokkrum manni spá Liverpool titlinum. En hvers vegna ekki? Frá því Benitez tók við hefur hann eytt 200 milljónum punda í leikmenn. Meðal þeirra eru 5 dýrustu leikmenn í sögu félagsins en ekki er að merkja að liðið sé mikið betra en fyrir 5 árum.

Benitez hefur skilað í hús FA bikar og Meistaradeildinni en þar með er það upp talið. Houllier skilaði tveimur FA bikurum, einum deildarbikar og einum Evrópubikar og var rekinn fyrir að ná ekki nógu góðum árangri.

Er nema von að Modson spyrji hvort metnaður félagsins sé minni en áður. Mér finnst reyndar góður punktur að einhver betri þurfi að taka við ef Benitez fer og ég veit að margir gældu við þá hugmynd að fá Mourinho. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að Liverpool sé stærri klúbbur en svo að hann eigi að sætta sig við þann árangur sem náðst hefur undanfarinn áratug. Spurningunni um hvort betri þjálfarar séu fáanlegir er hreinlega hægt að svara með að líta á árangur Benitez í starfi. Hann hefur ekki staðið sig nógu vel og því miður lítur ekki út fyrir að Liverpool sé að færa sig í átt til Englandsmeistaratitils og því þarf að leita annað... og svo ég sé ómálefnalegur þá hef ég aldrei þolað menn sem fagna ekki mörkum. Það er bara eitthvað rangt við þannig lagað.

Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
Kjartan   |2008-08-24 21:48:08
Aldrei þessu vant, Björn, þá er ég fullkomlega sammála þér.
Hjalti   |2008-08-25 17:46:02
Mér finnst þetta of mikil einföldun á málinu. Það er lang best að meta stjóra yfir endanlegan stigafjölda í lok leiktíðar. Ef ég man rétt þá hefur Liverpool aukið stigafjöldann sinn á hverju ári fyrir utan eitt eftir að Benitez tók við.
Það er vissulega margt á leikmannamarkaðnum sem Benitez virðist ekki hafa gert rétt en honum vorkunnar þá eru keppinautarnir (ManUtd og Chelsea) að kaupa 15-30 milljóna menn á færibandi á hverri leiktíð á meðan að Liverpool virðist skrapa í einn á ári. Barry er gott dæmi. Nú eiga þeir ekki fyrir honum á meðan að Man Utd hefur keypt tvo svipaða leikmenn (Hargreaves og Carrick).
Ég tek undir að Liverpool virðist ekki líklegt til afreka á þessu ári en það ekki vegna þess að þeim hefur farið aftur, þvert á móti held ég að þeir hafi bætt sig, heldur hafa ManUtd og Chelsea aldrei verið sterkari.
Bjössi þú segir að það sé ekki sjáanlegur munur á Liverpool liðinu núna og þegar Benitez tók við. Má ég minna þig á að fyrir 5 árum var Dudek í marki, Djimi Traore í bakverðinum, Biscan á miðju og Baros frammi.
Kjartan   |2008-08-26 01:35:51
Það er samt ekki hægt að kenna Alex Ferguson eða Scolari um að Liverpool spili eins og kúkar á móti Middlesbrough...
Eggert   |2008-08-26 09:01:31
Verður samt að segja að þeir unni leikinn - ólíkt því sem hefði gerst fyrir 1-2-3 árum...
Lykillinn að því að geta gert atlögu að titlinum er sá að vinna ekki bara stóru liðin, heldur einnig þau smærri. Hversu oft höfum við séð United eða Chelsea vinna eftri að skora mark í uppbótartíma? Það hefur Liverpool ekki verið að gera, fyrr en nú.
Hjalti   |2008-08-26 09:48:33
Ég held líka að Liverpool munu líka seint safna svipuðum stigafjölda og þeir hafa gert undanfarin ár ef þeir spila eins og í upphafi þessa leiktíðar. Þá má Benitez fjúka.

Fyrir nokkrum árum var nóg að vera með um 80 stig til að vinna titilinn. Núna miðast það við 90 stig. Kalt mat, þá finnst mér á þessari leiktíð undir 75 stig vera óásættanlegt. 75-85 semi, yfir 85 mjög sáttur.
Óttar   |2008-08-27 12:17:05
Hjalti þú segir að United og Chelsea kaupi 15-30 milljón punda menn á færibandi meðan liverpool nær að skrapa í einn. Er ekki helsti munurinn sá að United og Chelsea eyða frekar stórt í einn leikmann heldur en að kaupa fullt af ódýrari leikmönnum á svona 2-8 milljón punda verðinu?

Ég fann í grein sem var skrifuð í apríl 2007 eftirfarandi statistic um hvað Benitez hefur keypt síðan hann kom til Liverpool, held að tölurnar hér að neðan séu nettó.

04-05
Total spending £15.85m
Costliest buy Xabi Alonso, £10.8m

05-06
Total spending £28.9m
Costliest buy Peter Crouch, £7m

06-07
Total spending £29.7m
Costliest buy Dirk Kuyt, £10.9m

Og hérna má sjá að síðan hann tók yfir að þá hefur hann keypt 51 leikmann (sem gera um 12-13 leikmenn á seasoni) fyrir 181 milljón punda. http://www.lfchistory.net/stats_transfers_by_manager.asp?list=Get&manager_id=20&InOut=1

Hann hefur pottþétt getað varið þessum peningum betur.
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
< Prev   Next >
Advertisement

Add to Google Reader or Homepage
Subscribe in Bloglines
Subscribe in NewsGator Online
Add to netvibes
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color