Getraunaleikur Sammarans og Jóa útherja verður að sjálfsögðu á sínum stað á komandi tímabili í enska boltanum. Reynir á getspeki lesanda, en eins og fastagestir síðunnar þekkja gengur leikurinn út á að spá fyrir um lokastöðuna í ensku úrvalsdeildinni, eins og hún kemur til með að birtast mönnum í maí 2011. Líkt og síðustu ár mun "staðan" í leiknum birtast á Sammaranum með reglulegu millibili næstu mánuði. Þátttökugjald er ekkert, en líkt og á síðasta tímabili mun stigahæsti þátttakandinn fá úrvalsdeildartreyju að eigin vali í boði Jóa útherja. Sjá meira...
Gunnar Örn Runólfsson sendi okkur þessa stórskemmtilegu grein um rokkáhuga fótboltamanna.
Greint var frá því að aðal upphitunarlag spænska landsliðsins væri lagið Club Foot með Kasabian. Var miðvallarleikmaðurinn katalónski Andrés Iniesta hvað mest hrifinn af sveitinni að hann sagðist ætla að bjóða sveitinni að koma og horfa á leik Barcelona og Real Madrid á næsta leiktímabili. En það var ekki allt, Iniesta vildi ennfremur bjóða breska indíbandinu að gista heima hjá sér og kíkja svo með sér á djammið í borginni.
Iniesta var þó ekki sá eini sem lýsti yfir mikilli hljómsveitaaðdáun á heimsmeistaramótinu því að Argentínumaðurinn Lionel Messi lýsti yfir miklum áhuga á Oasis eftir að samlandi hans Carlos Tevéz leikmaður Manchester City kynnti hann fyrir bandinu við undirbúning argentínska landsliðssins fyrir stóru keppnina. Messi sagðist m.a.s. ætla að bjóða sveitinni til Argentínu ef Argentínumenn myndu hampa heimsmeistaratitlinum.
Þá þykir greinarhöfundi ansi forvitnilegt að líta á samband rokks og þá helst þungarokks og fótbolta.
Upplifðir þú lokamínútur úrslitaleiksins eins og síðasta dag jólafrísins? Hefur þú ráfað um í reiðuleysi undanfarna daga? Hefur þú uppgötvað, þér til mikillar mæðu, að þú hefur ekkert að tala um í kaffinu í vinnunni og kveikt á sjónvarpinu þegar þú kemur heim einungis til að komast að því að þar eru bara tálknmálsfréttir?
Varst þú á fótboltafylleríi síðastliðinn mánuð? Vantar þig afréttara? Þá er þetta eitthvað fyrir þig.
Sammarinn gerði upp HM eins og honum er einum lagið með HM Fótbolta Quiz. Í fyrsta skipti var keppt bæði í borg óttans á heimavelli Sammarans á English Pub og svo norðan heiða á Kaffi Akureyri. Mæting var í góðu lagi á báðum stöðum og sérstaklega gaman að sækja Norðanmenn heim sem að létu vel af keppninni og nokkuð ljóst að Sammarinn verður að fjölga heimsóknum sínum í höfuðborg Norðurlands. Úrslitin voru eftirfarandi:
Reykjavík
Jóhann Alfreð Kristinsson og Jóhann Már Valdimarsson 30/30
Ari Erlingsson og Máni Gunnarsson 29/30
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson og Leifur Arnkell Skarphéðinsson 28/30
Akureyri
Bjarni Jónasson og Benedikt Víðisson 27/30
Heimir Örn Árnason og Jónas Þór Halldórsson 26/30
Tryggvi Páll Tryggvason og Hjalti Rögnvaldsson 24/30
Mynd af sigurvegurum frá Akureyri birtist um leið og myndatökumenn skila sér úr útilegu.
Quiz-óðir geta svo farið að hlakka til vetursins enda verða Sammarinn og English Pub í banastuði í vetur.
Sammarinn.com hefur lagt land undir fót og dvelur nú í höfuðstað Norðurlands og heimkynnum fögurstu fljóða landsins og kóks í bauk. Í kvöld stendur Sammarinn fyrir löngu tímabæru HM Fótbolta Quiz Sammarans á Kaffi Akureyri og hefjast leikar kl 21.
Hvað? Fótbolta Quiz Sammarans - HM þema
Hvar? Kaffi Akureyri
Hvenær? Fimmtudagskvöldið 22. júlí kl 21
Hvernig? 2 saman í liði og 30 fótboltaspurningar sem allar tengjast HM
Hvers vegna? Flott flæðandi verðlaun, stór bjór á 600 kr og fimm í fötu á 1850 kr
Það verður fróðlegt að sjá hvort sigurvegarinn komi úr röðum KA manna, Þórsara, Reykvíkinga eða túrista.
Nú er komið af öðrum hluta í greinaröðinni Ísland og
Evrópa. Fyrir helgi rifjuðum við upp stórbrotin afrek Hlíðarendapilta en nú er
komið af Reykjavíkurstórveldinu sjálfu. Knattspyrnufélag Reykjavíkur reið á
vaðið í Evrópu fyrst íslenskra félaga árið 1964. Andstæðingarnir voru
Englandsmeistarar Liverpool sem líkt og KR léku sína fyrstu Evrópuleiki.
KR-ingarnir áttu ekkert í Poolarana og töpuðu samanlagt 1-11. Næstu 5 tímabil
frá 1965-1969 sendu Vesturbæingar lið til leiks en áttu ekki erindi sem erfiði.
Margir skellir litu dagsins ljós. 2-12 gegn Feyenoord og 0-10 gegn Aberdeen svo
dæmi séu tekin. 25 ár liðu svo þar til KR tók þátt í Evrópukeppni á nýjan leik.
Vissulega ætti að vera spurningamerki aftast í fyrirsögninni en hún er meira krassandi svona. Eins og margir KR-ingar hef ég nánast allt tímabilið klórað mig til blóðs í hausnum yfir samhljóma lofsöng íslenskra fjölmiðla yfir frammistöðu Bjarna Guðjónssonar í sumar. Aftur og aftur á Bjarni afleita leiki og menn segja hver við annan í stúkunni „hvað ætli hann fái nú mörg m fyrir þetta?“. Iðulega stendur hann svo uppi sem besti maður vallarins að mati fjölmiðlamanna, alveg óháð því hvernig hann stóð sig á vellinum. Eftir leik Hauka og KR í gær var mál manna að Bjarni hefði verið versti leikmaður vallarins og heyrði ég menn sem komu heim af vellinum halda því fram að þetta hafi verið lélegasti leikur Bjarna í sumar. Þrátt fyrir það fékk hann m í Morgunblaðinu.
Ég hef velt þessum stórundarlegu vinnubrögðum fjölmiðlamanna rækilega fyrir mér og hef dottið niður á tvær kenningar, sem ég tel líklegastar. Þá er ekki talin sá möguleiki að ég hafi gengið inn í einhvers konar Vesturbæjarútgáfu af Twilight Zone fyrr í sumar.